Svæðisstjóri

Svæðisstjórar Suðurlandsskóga

  • Gullbringusýsla: Svæðisstjóri Hrönn Guðmundsdóttir. Sími 899-9662
  • Árnessýsla: Svæðisstjóri Harpa Dís Harðardóttir. Sími 899-9653
  • Rangárvallasýsla: Svæðisstjóri Hallur Björgvinsson. Sími 864-6606
  • A og V skaftafellssýslur: Svæðisstjóri Valgerður Erlingsdóttir. Sími 892-9749

Hlutverk svæðisstjóra

Hlutverk svæðisstjóra er fyrst og fremst að vera tengiliður á milli bóndans og Suðurlandsskóga (Sls). Einnig að vera leiðbeinandi varðandi alla vinnuþætti bóndans og veita ráðgjöf.

Umhirða í dreifingastöð
-er stór þáttur í starfi svæðisstjóra. Framleiðandinn afhendir plönturnar að vori beint í dreifingastöðina og þangað sækir bóndinn sínar plöntur. Mjög mikilvægt er að viðhalda plöntugæðunum með vökvun og áburðagjöf á þessum krítíska biðtíma þ.e.a.s frá afhendingu framleiðanda fram að gróðursetningu.

Plöntudreifing
-halda þarf utanum þennan þátt, svo bóndinn fái réttar tegundir og rétt magn á réttum tíma. Þessi hluti snýr einnig að öllu bókhaldi og reikningsskilum frá framleiðanda til bónda. Panta þarf plöntur fyrir 1 október sem gróðursetja á næsta ár.

Úttektir og eftirlit með útplöntun
-bændur eru heimsóttir ýmist á meðan verið er að gróðursetja eða að hausti. Veitt er ráðgjöf um jarðvinnslu, vinnuaðferðir, meðferð plantna, plöntuset, millibil plantna og áburðagjöf. Farið er yfir vinnuskýrslur með bóndanum og mál sem upp koma eru rædd og unnið úr. 

Skráning framkvæmda.

-svæðisstjóri sér um að skrá allar framkvæmdir inn í gagnagrunn þar sem öllum upplýsingum um framgang skógræktar á hverri jörð er safnað.

Bakka og laupaskil
-halda þarf utan um þennan þátt því bakkar og laupar eru verðmæti sem þarf að skila til framleiðanda.

Skipulagning næstu árs
-þá er farið yfir allt með bóndanum, hvort búið sé að skila vinnuskýrslum, eins hversu mikið hann vilji planta næstu ár, hve mikið þurfi að jarðvinna, og svo í kjölfarið gerð áburðaráætlun vegna áburðarkaupa og plöntuúthlutunarlisti gerður.

Skjólbeltarækt
-er stór hluti af verkefnum svæðisstjóra. Vinna svæðisstjóra fellst í stórum dráttum í ráðgjöf og verkstjórn, undirskrift samninga og útvegun á plöntum/græðlingum og plasti.