Hlutverk bænda
Girðingar:
-Friða landið fyrir ágangi búfjár, ( sjá girðingareglur).
Slóðagerð:
-Leggja þarf slóða um skógræktarsvæðið til að auðvelda allt aðgengi, (sjá reglur um slóðagerð).
Jarðvinnsla:
-Lykilatriði að vel heppnaðri skógrækt.
Flutningur:
-Sækja plöntur í dreifingarstöð, en þó ekki meira en tveggja daga skammt í einu, nema bóndi hafi sjálfvirka vökvun.
Bakka og laupaskil:
-Bökkum og laupum þarf að skila til svæðisstjóra, 20 bakka í búnti og merkta með nafni viðkomandi jarðar.
Umhirða:
-Plöntur þarf að geyma á skuggsælum og skjólgóðum stað fyrir útplöntun.
-Vökvun, gæta þarf sérstaklega að því að rætur þorni ekki.
-Áburðargjöf, bera þarf á nýgróðursettar plöntur sem og eldri gróðursetningar.
-Grisjun og útdráttur, huga þarf að þessum þætti fljótlega, en þó í samvinnu við fagaðila.
Útplöntun:
-Velja þarf rétt plöntuset fyrir plönturnar
-að þær séu nægilega djúpt settar, sitji rétt og séu beinar
Verktakar:
-Þeir bændur sem ekki planta og jarðvinna sjálfir þurfa að finna sér verktaka til verksins.
Skýrslur:
-Vinnuskýrslur, þarf að fylla út jafn óðum og skila strax að lokinni gróðursetningu.
-Uppgjörsskýrslur eru unnar upp úr vinnuskýrslum.
-Framkvæmdarskýrslur, þar eru skráðar áætlaðar framkvæmdir næstu 2. ára s.s. hvaða reiti á
að taka, hvaða plöntutegundir á að gróðursetja og hvaða jarðvinnslu á að framkvæma.
Alla þessa þætti þarf að vinna í samráði við svæðisstjóra í viðkomandi sýslu.
