Umsóknarferli

 Umsókn um aðild er send inn á skrifstofu Suðurlandsskóga sem leggur umsóknina fyrir stjórnarfund þar sem hún er tekin fyrir.

 Frá því að umsókn um aðild er samþykkt og þar til hægt er að hefja framkvæmdir þarf að ganga í gegnum ákveðið ferli.

 Starfsmenn Suðurlandsskóga koma í heimsókn og taka út skógræktarskilyrði, ákveða í samráði við bóndann hvaða svæði tekið verður undir skógræktina og útbúa  samningskorti af svæðinu. Ganga þarf frá samningi á milli verkefnisins og  skógarbóndans, sem sendur er til sýslumanns til þinglýsingar. Síðan er svæðið kortlagt og gerð ræktunaráætlun. Að þessu loknu getur skógarbóndi hafið framkvæmdir.