Framlög

Reglur varðandi framlög til skógræktar.

-Uppgjör fer fram tvisvar á ári, um miðjan júlí og um miðjan desember.

-Vinnuskýrsla vegna framkvæmda verður að liggja fyrir svo hægt sé að reikna framlagið.

-Allir reikningar sem Sls. hafa greitt fylgja með framlaginu, til að bændur geti innheimt innskatt af þeim.

-Taxtar sem greitt er eftir eru endurskoðaðir ár hvert í samráði við Félag skógarbænda og uppfærðir samkvæmt neysluvísitölu.

-Ekki er greitt framlag á þær jarðir sem ekki skila inn vinnuskýrslum.

-Ef um einhverjar aukagreiðslur er að ræða skal sækja um það hjá framkvæmdastjóra og samþykkt verður að liggja fyrir, áður en framkvæmdir hefjast.

-Hluti af framlaginu til bænda liggur í endurgreiðslu virðisaukaskatts af greiddum reikningum.

-Nytjaskógrækt er virðisaukaskattskyld starfsemi og verður skógarbóndi að sækja um sérstakt virðisaukanúmer til síns sýslumanns

-Uppgjör skjólbelta fer fram um miðjan desember.