Plöntuafhending.
Skógarbóndi sækir plöntur og áburð á dreifingarstöð á sínu svæði. Mikilvægt er að flytja plöntur í lokaðri kerru eða bíl þannig að vindur nái ekki að leika óhindrað um plönturnar. Ef ekið er með óvarðar plöntur á ca. 90 km hraða, þá samsvarar það 25 m/s vindhraða sem getur skaðað viðkvæmar plöntur.
Ef ekki er hægt að gróðursetja strax eftir afhendingu úr dreifingarstöð er best að geyma plönturnar á skuggsælum stað, helst í skjóli og sléttum fleti, svo loft leiki ekki um ræturnar. Vökva hæfilega og gæta þess að plöntuhausinn þorni ekki upp.
Mikilvægt er að plönturnar séu í góðu næringarástandi þegar þær eru gróðursettar. Ef þær eru ekki gróðursettar strax er hætta á að næringarinnihaldið verður orðið lítið sem veldur því að plöntur vaxa lítið sem ekkert.
Dreifingarstöðvar.
Dreifingarstöðvar eru fjórar, ein í hverri sýslu. Hér að neðan kemur fram staðsetning dreifingarstöðva og opnunartími.
Árnessýsla:
Björnskot á Skeiðum.
Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga frá 9.00-13.00
Harpa Dís Harðardóttir. Sími 899-9653
Rangárvallasýsla:
Bjargarkot í Fljótshlíð.
Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga frá 9.00-13.00
Hallur Björgvinsson. Sími 864-6606
Vestur Skaftafellssýsla
Prestbakkakot á Síðu
Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga frá 9.00-12.00
Valgerður Erlingsdóttir. Sími 892-9749
Austur Skaftafellssýsla
Dilksnes
Opnunartími eftir samkomulagi
Finndís Harðardóttir. Sími 849-1920.
