Suðurlandsskógar

Suðurlandsskógar

Suðurlandsskógar er átaksverkefni í skógrækt á Suðurlandi til 40 ára. Takmarkið er að rækta upp skóg í 5% af láglendi Suðurlands á tímabilinu.

Lög um Suðurlandsskóga voru sett á Alþingi 1997, en ný lög um landshlutaverkefnin sem Suðurlandsskógar heyra undir, voru samþykkt 2. júní 2006. Fyrst var gróðursett undir merkjum Suðurlandsskóga vorið 1998.

Starfssvæði verkefnisins nær yfir Reykjanes, Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Skaftafellssýslurnar báðar.