Hinn árlegi Skógardagur verður haldinn að venju í Mörkinni í Hallormsstaðaskógi þar sem allir eru velkomnir að njóta skemmtunar í skóginum.
Nú verður sú nýbreytni tekinn upp að hefja Skógardaginn mikla á föstudagskveldinu 25. júní með því að sauðfjárbændur grilla lambakjöt ofan í gesti og gangandi kl. 20:00 í Mörkinni.
Dagskrá laugardagsins 26. júní er nokkuð hefðbundin en þar má m.a. finna:
Skógarhlaup 14 km ræsing í Mörkinni kl. 12:00
Fjölskylduhlaup 4 km ræsing í Mörkinni kl 12:30
Formleg dagskrá hefst kl. 13:00 með Íslandsmóti í skógarhöggi
Heilgrillað Egilsstaðanaut borið fram af skógarbændum.
Pylsur í hundraðavís
Lummur og ketilkaffi
Sumardrykkir í boði MS
Skógarþrautir
Pjakkur og Petra skemmta ungviðinu
Kötturinn Klói mætir á svæðið
Hinn eini sanni Freyr Eyjólfsson skemmtir á sviðinu
Ásgrímur Ingi stjórnar samkomunni á borgfiska vísu.
sjá nánar á www.skogarbaendur.net