|
Að venju er skógarbændum á Suðurlandi og gestum þeirra boðið í Jónsmessugöngu. Nú verður farið í Kaldbak á Rangárvöllum og hjónin Sigríður H. Heiðmundsdóttir og Viðar H. Steinarsson heimsótt.
Skógræktarsvæði verða skoðuð og boðið upp á veitingar.
Ketilkaffi og skógarmannasöngur er auðvitað staðalbúnaðar Jónsmessusamkomunnar.
Gaman væri að sjá sem flesta.
|