Slóðagerð

Slóðar

 Nauðsynlegt er að leggja slóða um skógræktarlandið. Það auðveldar alla vinnu við að koma plöntum, áburði og mannskap á gróðursetningarstað. Einnig til að komast um landið við grisjun og síðast en ekki síst til að flytja afurðirnar úr skóginum. Slóðagerð er mjög mikilvægur þáttur til að framkvæmdir í skógi gangi greitt og vel fyrir sig. Æskilegast er að skipuleggja slóðana áður en framkvæmdir hefjast.