Plöntuframleiðsla

Útboð og kaup Suðurlandsskóga (Sls) á trjáplöntum.

 Allt frá fyrsta ári hefur stefna verkefnisins verið að bjóða út framleiðslu á trjáplöntum. Nánast öll plöntukaup Sls fara þar af leiðandi fram eftir útboð.

 Útboðin eru framkvæmd af Ríkiskaupum og hlítum við þeim reglum sem þar er unnið eftir. Nánast undantekningarlaust er samið við lægstbjóðendur í hverju útboði fyrir sig og samið við viðkomandi til fimm ára, eitt ár í senn.

 Ef framleiðandi er ekki sáttur við það verð sem hann fær fyrir sína framleiðslu segir hann upp samningi við Sls og viðkomandi framleiðsla er sett í útboð. Á sama hátt geta Sls sagt upp samningi við framleiðenda ef hann stenst ekki gæðastaðla eða annað sem kemur upp sem gefur tilefni er til endurskoðunar.