Jarðvinnsla

Jarðvinnsla
Jarðvinnsla hefur marga kosti fyrir trjáplöntur s.s. að samkeppnin og eitrunaráhrifin frá öðrum gróðri minnka, jarðvinnsla losar um næringarefni, hraða næringarefnaumsetningu og veldur því að jarðvegur hitnar fyrr á vorin og vatnsbúskapur batnar, því er oftast hreyft við landi áður en hafist er handa við gróðursetningu. Sérstaklega á það við um svæði þar sem samkeppni við annan gróður er mikil eins og í fjalldrapamóum og þéttu graslendi.

Hafa skal í huga jarðvinnsla mótar útlit skógarins. Skógurinn kemur til með að liggja nákvæmlega eins og stefna jarðvinnslunnar er. Mikilvægt er að jarðvinnslan falli sem best að landslaginu á viðkomandi stað. Til að fá fallegan skógarjaðar þá er gott að jarðvinnslan fylgi jaðri þess gróðurlendis sem jarðunnið er. Hægt er að fela massívan nytjaskóg með fallegum jöðrum þar sem lauftegundir eru ríkjandi. Þótt rásir og för séu áberandi fyrstu árin eftir jarðvinnslu þá hverfa þau með tímanum.

Helstu jarðvinnsluaðferðir:        

Herfing 

 

 

 

 

 Plæging

 

 

 

 

 Flekking

 

 

 

 

 

Tæting