Áburðargjöf
Fyrsta árið eftir gróðursetningu er oft það erfiðasta í lífi trésins. Nýgróðursett planta hefur lítið rótarkerfi, er ekki komin með svepprót og er í samkeppni við þann gróður sem fyrir er á svæðinu um næringarefni, því líður plantan oft skort. Best er að bera á plöntur strax eftir gróðursetningu, það eykur lífslíkur hennar til muna, vöxtur hefst fyrr og plantan verður fyrir minni skakkaföllum af völdum ranabjöllu, kals og fleiri þátta. Gæta verður þess að bera ekki á of stóran skammt, hæfilegur skammtur er 10-15 gr. pr. plöntu til að byrja með og auka svo skammtinn eftir því sem plantan stækkar.
Gæta verður að því að áburðurinn lendi hvorki of nálægt né of langt frá plöntunni. Áburður sem liggur við rótarháls getur brennt sár á stofninn og plantan getur drepist og áburður sem er settur of langt í burtu nýtist plöntunni lítið. Ekki er æskilegt að bera á ungplöntur eftir mánaðarmótin júlí/ágúst.
