Í nytjaskógrækt er nauðsynleg að grisja til að rýma fyrir bestu trjánum og fjarlæga tré sem eru slök af gæðum. Tré sem eru greinalítil, fljót – og beinvaxinn eru eftirsótt og því eru þau valin til að standa.
Það dregur mikið úr þvermálsvexti trjánna þó þau haldi áfram að hækka ef ekki er grisjað.
Megin tilgangur grisjunar timburskóga er að skapa eins verðmætan skóg eins fljótt og mögulegt er.
Grisjun fer oftast fram að vetri til og eru notaðar keðjusagir eða kjarrsagir til að fella trén og eru þau síðan færð út á auð svæði, annað hvort með dráttarvél eða fjórhjóli. Misjafnt er hversu mikið er grisjað í einu en við fyrstu grisjun í 20-25 ára skógi þar sem þéttleiki er 2500-4000 tré/ha er þéttleikinn eftir fyrstu grisjun u.þ.b. 1500 tré/ha. Einungis eru dregin út þau tré sem talin eru nýtileg.
