Framkvæmdir

Framkvæmdir

Frá því að ákvörðun hefur verið tekin um að taka land til skógræktar og þar til farið er að njóta afurðanna líður oft langur tími og taka þarf tillit til margra þátta.

Þegar skógræktarsamningur hefur verið samþykktur, gerð hefur verið ræktunaráætlun og land friðað fyrir búfjárbeit geta framkvæmdir hafist. Framkvæmdir næsta árs eru skipulagðar á veturna því er gott að skógarbændur og svæðisstjórar skipuleggi framkvæmdir næsta árs í haustheimsóknum svæðisstjóra eða sendi inn óskir á skrifstofu Sls á haustin.
Skýrslum vegna framkvæmda þarf að skila inn fyrir 1. júlí eða 1. desember svo hægt sé að ganga frá framlögum og skrá framkvæmdir í gagnagrunn.