Forsíða Suðurlandsskógar Almennar upplýsingar Framkvæmdir Eyðublöð og taxtar Fundargerðir Hafðu samband Heim  Leita á síðu  Prenta  Veftré


 


Ljósmynd Agnes Geirdal 2007


Flokkur: Almennar fréttir

31.8.2010 08:31

Haustferð skógarbænda


Félag skógareigenda á Suðurlandi býður félagsmönnum sínum til haustferðar laugardaginn 4. september og er þess vænst að þeir bjóði með sér fjölskyldu og vinum.

Eitt aðal tilraunasvæði skógræktar á Suðurlandi, að Mosfelli, verður skoðað undir leiðsögn Aðalsteins Sigurgeirssonar, fo..

Lesa Meira.. Meira

25.8.2010 14:29
Skotlandsferð
Grænni skóga
Skotlandsferð
20 manna hópur nemenda í Grænni skógum á Suður og Vesturlandi fóru á dögunum í 7 daga námsferð til Skotlands. Farið var á ýmsa staði þar sem skógræktarfólk á svæðinu hafði skipulagt dagskrá og leiddi okkur um skógana.

Byrjað var á því að skoða einn besta Sitkagreniskóg Skota þar sem við fræddumst um ræktun sitkagrenis, umhirðu og markaðssetningu skógarins.
Síðan var haldið inn í Hálöndin þar sem við hittum aðila frá skógræktinni sá, sá um fjölbreytileika skóganna og verndun náttúruskóga. Hann leiddi okkur í gegnum einn best varðveitta skógarfuruskóg í Skotlandi.
Á þriðja staðnum skoðuðum við forna eikarskóga og fræddumst um vistkerfi þeirra, sögu og nýtingu.
Að lokum fórum við út í eyjuna Bute þar sem fólkið á eyjunni hafði sameinast um að kaupa risaskóglendi á norðurhluta eyjarinnar og gera hann að almenningseign. Á eyjunni tók á móti okkur forsvarmaður verkefnisins og fræddi okkur um skóginn, náttúru eyjarinnar og menningu.
Á Bute skoðuðum við fræga garða í kringum Mt Stuart herragarðinn, fórum á hálandaleika og skoskt þjóðdansaball í kastalanum.

Milli þess sem við vorum í skógargöngu skoðuðum við sögufræg tré m.a. ýviðartré sem er hugsanlega elsti núlifandi einstaklingur í Evrópu, elstu eikina, hæsta tré Evrópu og voldugasta tré Evrópu.

Ferðin var í alla staði mjög fín, skemmtilegt fólk, áhugaverðir staðir, fallegt land og skipulagið alveg til fyrirmyndar.
Farastjóri ferðarinnar var Arnlín Óladóttir og færi ég henni bestu þakkir fyrir allt.

Lesa Meira.. Meira

12.8.2010 14:55
Námsferð til Skotlands
Grænni skógar
Námsferð til Skotlands
20 manna hópur skógareigenda sem eru nemendur Grænni skóga l á Suður- og Vesturlandi eru að fara í sjö daga námsferð til Skotlands. Ýmislegt er hægt að læra af Skotum varðandi skógrækt og margt áhugavert að skoða

Fararstjóri verður Arlín Óladóttir skógfræðingur hjá Skjólskógum og henni til aðstoðar verða Hrönn Guðmundsdóttir frá Suðurlandsskógum og Guðmundur Halldórsson frá Vesturlandsskógum

Lesa Meira.. Meira

Suðurlandsskógar
Austurvegi 1. 2. hæð
800 Selfoss
Sími: 480 1824
Fax: 480 1818
www.sudskogur.is


 


Jólatré og skjólbelti
Námskeið LBHÍ
Grænni skógar námskeið
Grænni skógar Vesturlandi / Bæklingur
Grænni skógar Suðurlandi / Bæklingur



Félag skógarbænda

Félagsaðild

Ljósmyndir, skógarbændur á ferð og flugi

http://skogarbaendur.net/




Ársskýrsla Suðurlandsskóga 2008
Ársskýrsla Suðurlandsskóga 2009
Kynning á : Pelletime symposium iceland 2009 (1).pdf



Skoða allar fréttir

Suðurlandsskógar ▪ Austurvegi 1.  2. hæð ▪ 800 Selfoss ▪ Sími: 480 1824 ▪ Fax: 480 1818 ▪ www.sudskogur.is