Flokkur: Almennar fréttir
|
31.8.2010 08:31 | | | Haustferð skógarbænda | | | Félag skógareigenda á Suðurlandi býður félagsmönnum sínum til haustferðar laugardaginn 4. september og er þess vænst að þeir bjóði með sér fjölskyldu og vinum.
Eitt aðal tilraunasvæði skógræktar á Suðurlandi, að Mosfelli, verður skoðað undir leiðsögn Aðalsteins Sigurgeirssonar, fo.. Meira | | |
25.8.2010 14:29 SkotlandsferðGrænni skóga  20 manna hópur nemenda í Grænni skógum á Suður og Vesturlandi fóru á dögunum í 7 daga námsferð til Skotlands. Farið var á ýmsa staði þar sem skógræktarfólk á svæðinu hafði skipulagt dagskrá og leiddi okkur um skógana.
Byrjað var á því að skoða einn besta Sitkagreniskóg Skota þar sem við fræddumst um ræktun sitkagrenis, umhirðu og markaðssetningu skógarins. Síðan var haldið inn í Hálöndin þar sem við hittum aðila frá skógræktinni sá, sá um fjölbreytileika skóganna og verndun náttúruskóga. Hann leiddi okkur í gegnum einn best varðveitta skógarfuruskóg í Skotlandi. Á þriðja staðnum skoðuðum við forna eikarskóga og fræddumst um vistkerfi þeirra, sögu og nýtingu. Að lokum fórum við út í eyjuna Bute þar sem fólkið á eyjunni hafði sameinast um að kaupa risaskóglendi á norðurhluta eyjarinnar og gera hann að almenningseign. Á eyjunni tók á móti okkur forsvarmaður verkefnisins og fræddi okkur um skóginn, náttúru eyjarinnar og menningu. Á Bute skoðuðum við fræga garða í kringum Mt Stuart herragarðinn, fórum á hálandaleika og skoskt þjóðdansaball í kastalanum.
Milli þess sem við vorum í skógargöngu skoðuðum við sögufræg tré m.a. ýviðartré sem er hugsanlega elsti núlifandi einstaklingur í Evrópu, elstu eikina, hæsta tré Evrópu og voldugasta tré Evrópu.
Ferðin var í alla staði mjög fín, skemmtilegt fólk, áhugaverðir staðir, fallegt land og skipulagið alveg til fyrirmyndar. Farastjóri ferðarinnar var Arnlín Óladóttir og færi ég henni bestu þakkir fyrir allt.
Meira |
| 12.8.2010 14:55 Námsferð til SkotlandsGrænni skógar  20 manna hópur skógareigenda sem eru nemendur Grænni skóga l á Suður- og Vesturlandi eru að fara í sjö daga námsferð til Skotlands. Ýmislegt er hægt að læra af Skotum varðandi skógrækt og margt áhugavert að skoða
Fararstjóri verður Arlín Óladóttir skógfræðingur hjá Skjólskógum og henni til aðstoðar verða Hrönn Guðmundsdóttir frá Suðurlandsskógum og Guðmundur Halldórsson frá Vesturlandsskógum
Meira |
|
9.8.2010 13:54 Skil á bökkum og verkfærumEinmunatíð á Suðurlandi í sumar  Einmunatíð hefur verið á Suðuralndi nú í sumar og gróðursetningar gengið mjög vel. Allflestir skógarbændur hafa lokið framkvæmdum, starfsfólk Suðurlandsskóga hefur lokið við framlög til þeirra. Nú er verið að ganga frá eftir sumarið og eru skógarbændur sem ekki hafa skilað plöntubökkum og verkfærum sem þeir hafa fengið lánað að koma því sem allra fyrst á næstu dreifingastöð.
Meira |
| 18.6.2010 15:14 TaxtarTaxtar 2010. Hér koma taxtar ársins fyrir gróðursetningu:
Meira |
|
14.6.2010 16:13 Skógardagurinn Mikli 2010Hinn árlegi Skógardagur í Mörkinni í Hallormsstaðaskógi Hinn árlegi Skógardagur verður haldinn að venju í Mörkinni í Hallormsstaðaskógi þar sem allir eru velkomnir að njóta skemmtunar í skóginum.
Nú verður sú nýbreytni tekinn upp að hefja Skógardaginn mikla á föstudagskveldinu 25. júní með því að sauðfjárbændur grilla lambakjöt ofan í gesti og gangandi kl. 20:00 í Mörkinni.
Meira |
| 9.6.2010 12:06 Jónsmessuganga Jónsmessuganga, miðvikudagskvöldið 23. júní kl. 20.00.Að venju er skógarbændum á Suðurlandi og gestum þeirra boðið í Jónsmessugöngu. Nú verður farið í Kaldbak á Rangárvöllum og hjónin Sigríður H. Heiðmundsdóttir og Viðar H. Steinarsson heimsótt.
Meira |
|
4.6.2010 09:37 Opnunartími á dreifingarstöðvum Sls 2010. Opnunartími stytturOpnunartími plöntudreyfingarstöðva Suðurlandsskóga hefur verið styttur. Er það liður í sparnaði verkefnisins. Opnunin er sem hér segir: Meira |
| 19.4.2010 13:57 Margfaldur vöxtur trjáa.jpg) Þeir sem stunda skógrækt vita hvað það er mikilvægt að trjágróður fái mikla og góða næringu á fyrstu vaxtaárum. Á bænum Ytri-Ásum hefur lúpína verið notuð að hluta til í skógræktarsvæðinu til að mæta næringarþörf plantna. Sláandi munur er á milli svæða þar sem lúpína er notuð eða þar sem ”eingöngu” hefur verið notaður tilbúinn áburður. Allt að þrefaldan til fjórfaldan mun er hægt að finna á vexti trjáa. Sjón er sögu ríkari – sjá myndir.
Með vorkveðjum, Björn
Meira |
|
30.3.2010 10:50 Aðalfundur Félags skógarbænda á SuðurlandiFundarboð – Dagskrá aðalfundur Félags skógarbænda á Suðurlandi dagana 24. og 25. apríl 2010, í Keflavík. Laugardagur 24. apríl. Boðið er upp á rútuferð á fundinn frá Hvolsvelli, með viðkomu á Selfossi og Rauðavatni. Lagt verður af stað frá Hlíðarenda á Hvolsvelli kl. 9.00, frá Krónunni á Selfossi kl. 9.45 og frá Olís skálanum við Rauðvatn kl 10.30. Ef óskað er eftir að rútan stoppi í Hafnarfirði, þá hafið samband.
Hótel Keilir er fyrsti áfangastaður, en síðan verður snæddur léttur hádegisverður í Duus Húsi. 13:00 Aðalfundur Félags skógarbænda á Suðurlandi í Duus Húsi 15:30 Kynnisferð um Keflavík og nágrenni. 18:00 Komið á Hótel Keili. 20:00 Árshátíð Félags skógarbænda á Suðurlandi í boði félagsins í Duus húsi
Sunnudagur 25. apríl 9:00 Rútuferð frá Hótel Keili, ekið verður um Reykjanes og skógrækt skoðuð og annað áhugavert á nesinu. Áætluð heimferð klukkan 14:00.
Dagskrá aðalfundar: 13:00 Fundur settur 13.05 Lagabreytingar, sjá tillögu stjórnar 13:05 Venjuleg aðalfundarstörf 14:30 Erindi flytur Jón Kristófer Arnarson, verkefnisstjóri hjá LBHÍ, um skógrækt við erfið skilyrði
Lagabreytingar – tillaga: 1.grein laga Félags skógarbænda á Suðurlandi, hljóðar svo:
Félagið heitir Félag skógarbænda á Suðurlandi. Félagssvæði þess er starfssvæði Búnaðarsambands Suðurlands. Breytingartillagan er eftirfarandi: 1. nafn félagsins verði: Félag skógareigenda á Suðurlandi, skammstafað FsS. 2. yfirráðasvæði félagsins verði starfssvæði Suðurlandsskóga. 1.grein eftir breytingu verði: Félagið heitir Félag skógareigenda á Suðurlandi. Félagssvæði þess er starfssvæði Suðurlandsskóga. ___________________________________________________________________________________________________________
Gisting á Hótel Keili: Gisting á mann í tveggja manna herbergi með morgunmat kr. 5.000.- Gisting í einsmanns herbergi með morgunmat kr. 8.500. Léttur hádegisverður (súpa og brauð + fiskur) kr. 1.700. Bóka þarf gistingu á Hótel Keili í síma 420-9800 eða á info@hotelkeilir.is fyrir 10. apríl n.k.
Þeir sem ætla að fara með rútunni tilkynni það í tölvupósti á hronn@sudskogur.is eða í síma 480-1822. Rútan og kvöldverðurinn á árshátíðinni er í boði félagsins. Meira |
| 30.3.2010 08:39 Fagráðsfefna skógargeirans.Haldin í Stikkishólmi Meira |
|
2.3.2010 09:47 Fagráðstefna í skógræktHin árlega fagráðstefna í skógrækt verður haldin á Hótel Stykkishólmi dagana 24-26 mars næstkomandi. Meira |
| 25.1.2010 08:46 Námskeið hjá LBHÍEndurmenntun LbhÍ vill vekja athygli á áhugaverðum “Grænum” námskeiðum. Von er á nokkru fleiri námskeiðum fljótlega t.d. Að breyta sandi í skóg - endurheimt skóglendis á örfoka landi á Norðurlandi ofl.
Einnig bendum við á að fjölmörg námskeið eru í boði á heimasíðunni okkar www.lbhi.is undir “Næstu námskeið” ( www.lbhi.is/namskeid)
Skráningar á öll námskeiðin er á: endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími og nafn námskeiðs) eða hafa samband í síma: 433 5000.
Hægt er að fara með bendilinn á námskeiðsnöfnin hér fyrir neðan og klikka með músinni á nöfnin, þá kemur námskeiðslýsingin fram á hverju námskeiði fyrir sig.
9.2.2010
Nýting belgjurta til að auka frjósemi og afurðargetu jarðvegs - Hvanneyri
10.2.2010
Trjáfellingar og grisjun með keðjusög
27.2.2010
Ræktun áhugaverðra krydd-, lauk- og matjurta í eigin garði - Akureyri
27.2.2010
Útimatjurtir – grunnnámskeið fyrir byrjendur - Reykir
6.3.2010
Ræktum okkar eigin ber - Hvanneyri
6.3.2010
Trjá- og runnaklippingar I - Reykir
6.3.2010
Grunnnámskeið í blómaskreytingum - Reykjum í Ölfusi.
18.3.2010
Skipulag og umhirða kirkjugarða
20.3.2010
Ræktum okkar eigin ber - Reykir
20.3.2010
Trjá- og runnaklippingar I - Hvanneyri
20.3.2010
Ræktun áhugaverðra krydd-, lauk- og matjurta í eigin garði - Hvanneyri
20.3.2010
Grunnnámskeið í blómaskreytingum - Hvanneyri
10.4.2010
Ræktun áhugaverðra krydd-, lauk- og matjurta í eigin garði - Reykir
16.4.2010
Að breyta sandi í skóg - endurheimt skóglendis á örfoka landi - Gunnarsholt
17.4.2010
Jarðgerð / Safnhaugagerð
8.5.2010
Ræktun matjurta í sumarbústaðalandinu
20.5.2010
Umhirða opinna svæða
12.6.2010
Flóran – litrík og lystaukandi
20.6.2010
The potential of forage legumes .....
1.9.2010
Multivariate analysis of ecological data using CANOCO
Meira |
|
19.1.2010 14:00 Fræðslufundur og þorrablót félaga skógarbænda á Suður og VesturlandiFélagar í Félagi skógarbænda á Suðurlandi og Félagi skógarbænda á Vesturlandi boða til fræðslufundar og þorrablóts skógarbænda á Hótel Sögu laugardaginn 13. febrúar n.k. Dagskrá: Kl. 15:00 Bjarni Diðrik Sigurðsson prófessor við LbhÍ, hvað getur skógurinn gefið okkur annað en timbur. Kl. 15:45 Kaffihlé - Kl. 16:00Böðvar Guðmundsson áætlunarfulltrúi Sls, tegundir og kvæmi í jólatrjáræktun. Kl. 16:20 Aðalsteinn Sigurgeirsson forstöðumaður Mógilsár, rannsóknir og þróun í skógrækt. Kl. 17.05 Auður Ottesen ritstjóri, útgáfa á fræðsluefni í skógrækt. Kl. 17:25 Fundarslit Fundurinn er í boði skógarbændafélaganna.
Klukkan 18:30 hefst þorrablót skógarbænda. Boðið veður upp á þorramat að hætti Hótel Sögu. Verð á mann krónur 5.300.-
Þátttaka tilkynnist í tölvupóstfang bjorn@sudskogur.is eða í síma 480 1822.
Þeir sem vilja gista á Hótel Sögu hafi samband við hótelið og panti hver fyrir sig gistingu. Verð kr 9.000.- fyrir eins manns herbergi og krónur 10.000.- fyrir tveggja manna herbergi. Innifalið í verðinu er frír aðgangur að Mecca Spa, morgunverður og frítt þráðlaust internet. Tilkynnið við bókun að um er að ræða bændagistingu.
Stjórnir Félags skógarbænda á Suðurlandi og Félags skógarbænda á Vesturlandi,
Meira |
| 23.11.2009 09:23 Fréttablað Rannsóknarstöðvar Skógræktar ríkisins á Mógislá Meira |
|
12.11.2009 09:40 Grænni skógar llAnnað námskeið í Grænni skógum II
Skógarstígar – lagning og notagildi
Námskeiðið verður haldið 13. – 14 nóvember. að Reykjum og í Haukadal. Fyrirlestrar á föstudeginum og á laugardagsmorgninum. Kennarar á námskeiðinu verð þrír, Björgvin, Björn og Böðvar. Vettvangsferð í Haukadal á laugardeginum þar sem gengið verður út í skóg að skoða vegi, útdrátt og útkeyrslu á við.
Farið verður á einkabílum í Haukadal. Verið í góðum fótabúnaði. Takið með klæðnað eftir veðri og leðurvinnuvettlinga á laugardeginum.
Meira |
| 3.11.2009 15:41 Freysteinsvaka í HeiðmörkSkógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir Freysteinsvöku á Elliðavatni laugardaginn 7. nóvember, kl. 13-17. Umfjöllunarefni hennar verður náttúrufræðingurinn Freysteinn Sigurðsson, sem lést á síðast liðnu ári, og hin fjölbreytilegu áhugasvið hans. Sjá nánar á www.heidmork.is.
Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. Meira |
|
3.11.2009 10:10 Fyrsta námskeið í námskeiðaröðinni Grænni skógar ll Námskeið í trjámælingum var fyrsta námskeiðið í námskeiðaröðinni Grænni skóga sem haldið var á Reykjum í Ölfusi nú um helgina í blíðskapaveðri. Eftir fyrirlestra var farið út í skóg í verklegar æfingar. Kennari í námskeiðinu var Arnór Snorrason sérfræðingur á Mógilsá. Meira |
| 3.11.2009 10:03 Undirskrift samstarfssamnings Grænni skóga ll Föstudaginn 30 október var skrifað undir samstarfssamning Grænni skóga ll. þeir aðilar sem koma að námskeiðaröðinni eru Landbúnaðarháskóli Íslands, Suðurlandsskógar, Vesturlandsskógar, Félag skógarbænda á Suðurlandi, Félag skógarbænda á Vesturlandi, Skógrækt ríkisins og Landgræðsla ríkisins. Á eftir var boðið upp á kaffiveitingar.
Meira |
|
29.10.2009 15:36 Grænni skógar ll Á föstudaginn 30 október verður farið af stað með námskeiðsröðina Grænni skóga ll fyrir skógarbændur á Suður og Vesturlandi.
Skrifað verður undir samstarfssamning þeirra aðila sem koma að námskeiðaröðinni.. Það verða fulltrúar frá; Landbúnaðarháskóla Íslands, Suðurlandsskógum, Vesturlandsskógum, Félagi skógarbænda á Suðurlandi, Félagi skógarbænda á Vesturlandi, Skógræktinni og Landgræðslunni sem skrifa undir samninginn. Boðið verður uppá kaffiveitingar á eftir og málinn rædd.
Meira |
| 29.10.2009 11:44 Grænni skógar llÁ föstudaginn 30 október verður farið af stað með Grænni skóga ll. Kennt verður sameiginlega skógarbændum á Suður og Vesturlandi.
Sum námskeiðin verða því haldin á Vesturlandi og önnur á Suðurlandi. Það getur verið kostur að geta verið með námskeiðin á þeim stað sem hentar hverju sinnu og skógarbændur fáið að sjá fleiri svæði.
Aðeins einu sinni áður hefur námskeiðröðin Grænni skóga II verið kennd, það var á Austurlandi 2006 - 2008.
Sú sem verið er að setja af stað núna er aðeins frábrugðin þeirri sem var fyrir austan, því reynt er að aðlaga námskeiðin hverjum landshluta eins og kostur er. Námskeiðaröðin samanstendur af 12 námskeiðum, tvö námskeið á önn þannig að röðin stendur frá 2009 – 2012. Þetta verður ca. 20 manna hópur sem saman stendur af fólki sem allt er búið að fara í gegnum Grænni skóga I og hefur þar af leiðandi orðið talsvert mikla þekkingu á skógrækt, en vill fræðast en frekar.
Fyrsta námskeiðið Trjámælingar verður haldið að Reykjum í Ölfusi 30.- 31. október. Kennari verður Arnór Snorrason sérfræðingur á Mógilsá
Meira |
|
28.10.2009 15:42 Grænni skógar l Áætlað er að hafa þrjú námskeið í Græni skógum l nú á haustönn. Fyrsta námskeiðið var haldið á Hvanneyri dagana 9-10 október, “Val á trjátegundum” kennari Aðalsteinn Sigurgeirsson. Farið var í skógarreitinn í Skorradal og skoðaðar ýmsar trjátegundir í skógi.
Föstudaginn 23. okt og laugardaginn 24 okt. Var svo annað námskeiðið haldið og var viðfangsefnið “Skógarhönnun og landnýtingaráætlun” Kennari Brynjar Skúlason. Eftir hádegi á laugardeginum var farið í vettvangsferð í Gerðakot í Ölfusi.
Þriðja námskeiðið á þessari önn verður svo haldið á Hvanneyri dagana 20-21 nóvember og þá verður fjallað um girðingar.
Meira |
| 28.9.2009 15:19 Fræðslu og skoðunarferð Minnum á fræðsludaginn í Mosfelli í Grímsnesi laugardaginn 3. október næstkomandi. Skoðaðr verða tilraunir í skógrækt undir handleiðslu starfsmanna Mógilsár.
Þátttaka er opin öllum félögum í Félagi skógarbænda á Suðurlandi og er þátttökugjald ekkert.
Tilkynningar um þátttöku berist á hronn@sudskogur.is eða í síma 480 1824 Meira |
|
15.9.2009 10:17 Árlegt landsmót skógræktarverkefnanna Landsmót skógræktarverkefnanna er árlegur viðburður þar sem skógræktarverkefnin hittast og bera saman bækur sínar og fræðast um gang mála hjá hvert öðru. Að þessu sinni var farið austur á Eygilsstaði þar sem Héraðs og Austurlandsskógar voru gestgjafar. Margt fróðlegt og skemmtilegt bar á góma. Starfsmenn Suðurlandsskóga þakka innilega fyrir gott landsmót. Meira |
| 14.9.2009 14:37 Aðalfundur Landssamtaka skógareigenda Ágætu skógareigendur.
Aðalfundur Landssamtaka skógareigenda verður haldinn í Stórutjarnaskóla Ljósavatnsskarði 18. og 19. september n.k.
Kostnaður á mann í tvær nætur í tveggja manna herbergi með baði er kr 13.000- á mann og tveggja manna herbergi án baðs er kr 11.500.- Eins manns herbergi með baði er kr 15.500- á mann og án baðs kr 13.500.-. Innifalið er allur fundarkostnaður, gisting, morgunmatur, kaffi, kvöldmatur, hádegismatur, hátíðarkvöldverður og ferð að Vöglum.
Þátttakendur eru beðnir að tilkynna sig í Stórutjarnarskóla á tölvupóstfangið oliarn@storutjarnaskoli.is eða í síma 464-3220. Tekið er á móti pöntunum frá 1. til 11. september.
Meira |
|
1.9.2009 13:03 Fræðslu- og skoðunarferð.Laugardaginn 3. október verður fræðsludagur á Mosfelli í Grímsnesi. Tilraunir í skógrækt verða skoðaðar undir handleiðslu starfsmanna Mógilsár.
Dagskrá: Kl. 10:30 - Mæting við Gömlu Borg . K. 11:00 – Aðalsteinn Sigurgeirsson ásamt starfsmönnum Mógilsár sýna og segja frá skógræktartilraunum á Mosfelli. Kl. 13:00 - Komið að Gömlu Borg. Boðið upp á heita súpu og kaffi. Kl. 13:30 - Almennar umræður um tilraunir í skógrækt. Kl. 14:30 – Haldið heim á leið.
Þátttaka er opin öllum félögum í Félagi skógarbænda á Suðurlandi og er þátttökugjald ekkert.
Tilkynningar um þátttöku berist á hronn@sudskogur.is eða í síma 480 1824 Meira |
| 19.8.2009 11:19 Aðalfundur landssamtaka skógareigenda Aðalfundur Landssamtaka skógareigenda verður haldinn í Stórutjarnaskóla Ljósavatnsskarði 18. og 19. september n.k. Allar nánari upplísingar má nálgast hér Meira |
|
17.8.2009 11:22 Alþjóðleg ráðstefna um líforkuHaldin verður alþjóðleg ráðstefna um líforku, PELLETime symposium, dagana 18. - 20. ágúst nk. í íþróttahúsinu á Hallormsstað á Fljótsdalshéraði.
Ráðstefnan er hluti af PELLETimeverkefninu sem Héraðs-og Austurlandsskógar ásamt Skógrækt ríkisins á Austurlandi taka þátt í á vegum Norðurslóðaáætlunar Evrópusambandsins (NPP). Auk þessara aðila á Íslandi taka stofnanir í Skotlandi, Svíþjóð og Finnlandi þátt, Finnar leiða verkefnið.
Ráðstefnan fjallar um líforku, timbur og skyld efni og hvernig við getum nýtt okkar náttúruauðlindir á ábyrgan hátt. Ráðstefnan mun fara fram á ensku, en fyrirlesarar eru m.a. frá Íslandi, Noregi, Finnlandi og Svíðþjóð.
Ráðstefnan hefst á hádegi þann 18. ágúst. Ráðstefnugjöld eru kr. 5.000 og innifalið í því er ráðstefnan, tveir kvöldverðir og skoðunarferð þann 20. ágúst.
Nemar greiða engin ráðstefnugjöld.
Óskað er eftir að skráningar berist á netfangið; skogar@heradsskogar.is
Væntanlegum þátttakendum er bent á gistimöguleika á Hallormsstað sem finna má á slóðinni:
http://www.graihundurinn.is/ sími: 471-2400 Hægt er að sjá kynningu á ráðstefnunni hér neðst á forsíðu heimasíðu Suðurlandsskóga.
Meira |
| 11.8.2009 12:59 Góðir gestir í ferð um SuðurlandSjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason hélt í ferð á Suðurland fyrir skömmu ásamt m.a. Atla Gíslasyni alþingismanni og formanni sjávarútvegs og landabúnaðarnefndar og Jóni Birgi Jónssyni formanni vinnuhóps um endurskoðun landshlutaáætlananna. Sjá nánar á vef sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytisins.
Meira |
|
2.6.2009 13:13 Keppni í gróðursetninguSenn líður að gróðursetningakeppni Landsmóts UMFÍ en mótið fer fram dagana 9. – 12. júlí á Akureyri. Landshlutaverkefnin í skógrækt vilja hvetja skógarbændur til að tryggja að Meira |
| 29.5.2009 10:36 Jarðvinnsla
Meira |
|
11.5.2009 10:52 Aðalfundur félags skógarbænda á SuðurlandiSelfossi, 29. apríl 2009
Kæri skógarbóndi og / eða skjólbeltaræktandi.
Nú er komið að aðalfundi Félags skógarbænda á Suðurlandi. Verður hann haldinn 16. til 17. maí n.k., á Hótel Laka, Efri-vík, rétt sunnan Kirkjubæjarklausturs.
Dagskrá:
Laugardagur 16. maí 09:00 Lagt af stað með rútu frá Selfossi. Staðkunnugir leiðsögumenn verða í rútunni. 12:00 Komið að Hótel Laka og þar er hægt að kaupa sér léttan hádegisverð. 13:00 Aðalfundur Félags skógarbænda á Suðurlandi 15:00 Rútuferð, skógrækt skoðuð, m.a. farið að Prestsbakkakoti og jólatrjáræktun Sólveigar og Jóns skoðuð. 18:00 Komið á Hótel Laka. 19:00 Árshátíð Félags skógarbænda á Suðurlandi í boði FsS
Sunnudagur 17. maí 10:00 Rútuferð, keyrt verður um sveitir og skógræktarjarðir skoðaðar 16:00 Áætluð heimkoma á Selfoss
********* Dagskrá aðalfundar: 13:00 Fundur settur 13:05 Venjuleg aðalfundarstörf 14:30 Erindi, Agnes Geirdal segir frá ferð sem farin var til Danmerkur til að kynnast jólatrjáarækt Dana. **********
Rútan og kvöldverðurinn á árshátíðinni er kostuð af félaginu.
Gisting á Hótel Laka: Gisting á mann í tveggja manna herbergi með morgunmat kr. 5.000.- Gisting í einsmanns herbergi með morgunmat kr. 8.000.- Léttur hádegisverður (súpa og brauð +fiskur) kr. 2.100.-
Þeir sem ætla að fara með rútunni tilkynni þátttöku í tölvupósti á agnesg@simnet.is eða í síma 864 0923. Þeir sem ætla að gista bóki gistingu á Hótel Laka í síma 487 4694 eða á efrivik@simnet.is
Gaman væri ef skógarbændur fjölmenntu á aðalfundinn og notuðu kjörið tækifæri til að hittast og bera saman bækur, skoða myndarleg skógarsvæði og síðast en ekki síst að skemmta sér í góðra vina hópi.
Hlökkum til að sjá ykkur,
Stjórn Félags skógarbænda á Suðurlandi. Meira |
| 25.3.2009 14:15 Almennur félagsfundur Félags skógarbænda á SuðurlandiSkógarbændur – skógareigendur.
Almennur félagsfundur verður haldinn
þriðjudaginn 31. mars 2009, kl. 20:30 að Þingborg.
Dagskrá fundar:
*Brunavarnir í skógum, hvar erum við stödd? Björn B. Jónsson
*Kolefnismál hver er staðan í dag? María Ingvarsdóttir
*Kaffi og spjall
*Jólatré og ræktun þeirra, minnispunktar í máli og myndum frá námskeiði
sem farið var á í Danmörku í nóvember 2009. Agnes Geirdal
*Fundarlok áætluð kl 22:30
Allir velkomnir
Stjórn Félags skógarbænda á Suðurlandi
Meira |
|
23.3.2009 15:32 Samræming taxtaSamræming taxta á milli landshlutaverkefnanna.
Í vetur hefur verið unnið að því að samræma taxta hjá landshlutaverkefnunum. Þeirri vinnu er að mestu lokið en hjá Suðurlandsskógum hefur sú ákvörðun verið tekin að samræmingin taki tvö ár þ.e.a.s. árin 2009 og 2010.
Það sem hefur einkennt taxta Suðurlandsskóga frá töxtum hinna verkefnanna er hár gróðursetningartaxti og lágar greiðslur fyrir áburðargjöf. Þetta leiðir af sér lækkun á greiðslum fyrir gróðursetningu plantna 2009 hjá skógarbændum á Suðurlandi en þeim mun meiri hækkun á töxtum fyrir áburðargjöf. Þannig haldast heildartaxtar nánast óbreyttir í krónutölum milli ára á okkar svæði.
Aðrir taxtar eru nánast óbreyttir eins og sjá má á heimasíðu Suðurlandsskóga http://www.sudskogur.is. Engar vístöluhækkanir verða á töxtum ársins 2009.
Nýja taxtatöflu fyrir dráttarvélar er einnig að finna á heimasíðunni undir liðnum eyðublöð og taxtar.
Með vorkveðjum,
Björn B. Jónsson
Meira |
| 16.3.2009 13:05 Aukið fjármagn Aukið fjármagn til landshlutaverkefnanna í skógrækt Samkvæmt áætlun um aðgerðir í atvinnumálum sem ríkisstjórnin kynnti fyrir skömmu hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ákveðið að veita allt að 30 millj. kr. til landshlutaverkefnanna í skógrækt. Áætlað er að sú upphæð skapi 10 ársverk. Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir skógarbændur. Þó upphæðin sé ekki há, felst í þessu framlagi viðurkenning á því stóra hlutverki sem landshlutaverkefnin hafa í atvinnu- og auðlindasköpun á landsbyggðinni. Með þessu framlagi verður tryggt að ekki þurfi að henda neinum plöntum sem verkefnin höfðu skuldbundið sig til að kaupa. Eftir sem áður verður rekstur verkefnanna erfiður á þessu ári og allar færar leiðir til sparnaðar verða nýttar.
Meira |
|
11.3.2009 11:25 Grænni skógarGrænni skógar I er heiti öflugs skógræktarnáms sem að þessu sinni er boðið fróðleiksfúsum skógræktendum á Suður- og Vesturlandi, sem vilja ná hámarksárangri í skógrækt. Námið er í raun 16 námskeið og þar af eru 13 skyldunámskeið. Fyrstu námskeiðin verða kennd á vorönn 2009 og þau síðustu haustið 2011. Að meðaltali eru 2,5 námskeið á önn. Skráningarfrestur er til 20. mars.
Hvert námskeið stendur í tvo daga. Kennsla hefst kl. 16 á föstudögum og lýkur kl. 19. Á laugardögum er byrjað kl. 9 og kennt til kl. 16. Fjallað verður um mörg af grunnatriðum skógræktar m.a. um val á trjátegundum, undirbúning lands fyrir skógrækt, uppeldi og gróðursetningu skógarplantna, skógarumhirðu, skjólbelti, svo eitthvað sé nefnt. SUÐURLAND Nánari upplýsingar og skráning hjá Suðurlandsskógum í síma 480 1824 (Hrönn) hronn@sudskogur.is Bæklingur um SUÐURLAND
VESTURLAND Nánari upplýsingar og skráning hjá Vesturlandsskógum í síma 433 7054 (Guðmundur). gudmundur@vestskogar.is Bæklingur um VESTURLAND
Björgvin Örn Eggertsson verkefnisstjóri Grænni skóga gefur einnig upplýsingar í síma 433-5305 bjorgvin@lbhi.is
Landbúnaðarháskóli Íslands sér um skipulag námsins í samstarfi við Suðurlandsskóga, Vesturlandsskóga, félög skógarbænda á Suðurlandi og Vesturlandi, Skógrækt ríkisins og Landgræðslu ríkisins. Aðeins er hægt að taka 30 þátttakendur í Grænni skóga I. Þeir, sem ljúka 80 % af skyldunámskeiðunum, fá námið metið til eininga á framhaldsskólastigi. Á síðunni hér til hliðar er hægt að skoða bæklinga fyrir námskeiðin. Meira |
| 5.3.2009 08:33 Námskeið hjá LBHÍ í mars, apríl og maíEndurmenntun LbhÍ vill vekja athygli á áhugaverðum námskeiðum í mars, apríl og maí.
Meira |
|
16.2.2009 10:34 Tækifæri í kreppunni Í kreppunni leynast ýmis tækifæri ef fólk er hugmyndaríkt og áræðið. Halldór Elís Guðnason skógar-og skjólbeltabóndi á Efra-Seli rifjaði upp handbragðið við að tálga í tré og er að dunda sér við að tálga út verlaunagripi sem nota á í golfmótum sumarsins. Á Efra-Seli er samhliða skógræktinni rekinn ferðaþjónusta og golfvöllur. Gripirnir eru skornir út úr alaskaösp sem verið var að grisja. Meira |
| 2.2.2009 09:54 Trjáfellingar og grisjun með keðjusögEndurmenntun LbhÍ vill vekja athygli á áhugaverðu námskeiði á sviði skóg – og trjáræktar sem haldið verður á Reykjum í febrúar n.k.
Meira |
|
28.1.2009 14:20 Fagráðstefna skógargeirans 2009Ágætu viðtakendur.
Fagráðstefna skógargeirans 2009 verður haldin í Reykjavík 16-17. apríl næstkomandi. Nánar tiltekið í sal Félagsheimilis Þróttar í Laugardal. Takið dagana frá.
Mógilsá hefur náð samkomulagi við Grand Hótel varðandi gistingu. Verðið er 10.800 kr nóttin með morgunmat. Sama gjald er fyrir einstaklings og tveggja manna herbergi. Þeir sem vilja nýta sér þetta gistitilboð senda tölvupóst á Jóhann Sigurólason hjá Grand Hótel (jóhann@grand.is) og bóka gistingu (kóði “Skógrækt”). Aðeins er um 600 m gangur frá Grand Hóteli í sal Þróttar í Laugardal.
Pantið gistingu sem fyrsts, takmarkaður herbergjafjöldi er á þessu verði.
Þeir sem standa að Fagráðstefnu skógargeirans 2009 eru:
Rannsóknastöð skógræktar, Mógilsá
LBHÍ (Bjarni D. Sigurðsson)
Skógræktarfélag Íslands
Skógræktarfélag Reykjavíkur
Upplegg ráðstefnunnar veður eftirfarandi:
Fimmtudagur, 16 apríl 2009, salur Þróttar í Laugardal
11:00-13:00 Skráning og léttar veitingar
13:30-17:00 Fagráðstefna
17.00-19.00 Skoðunarferð
20:00 -24.00 Kvöldverður og skemmtidagskrá (Salur Þróttar í Laugardal)
Föstudagur, 17 apríl 2009, salur Þróttar í Laugardal
09:00-12:30 Fagráðstefna frh.
12:00-13:00 Hádegisverður
13:30-17:00 Fagráðstefna frh.
Væntanleg þemu ráðstefnunnar í ár verða (drög):
1. Skógrækt á krepputímum. Framtíðaráform stjórnvalda.
2. Skógrækt í hlýnandi loftslagi.
3. Ræktunartækni nytjaskógræktar og viðarframleiðsla á Íslandi.
4. Skógrækt, umhverfismál og almenningur
Óskað er eftir tillögum að erindum (15+5 mín) sendið á olie@skogur.is
Dagskrá ráðstefnunnar ásamt öðru tilheyrandi kemur síðar.
Heimasíða Ráðstefnunnar er www.skogur.is/fagradstefna (við reynum að uppfæra hana reglulega)
Fyrir hönd þeirra sem standa að fagráðstefnu í skógrækt
Ólafur Eggertsson, Mógilsá
Meira |
| 28.1.2009 11:11 Starfshópur umjólatrjáarækt á Ísland Starfshópur hefur verið settur á laggirnar sem á að greina það sem við íslendingar getum nýtt af reynslu Dana við ræktun jólatrjáa við Íslenskar aðstæður.
Starfshópinn skipa;
Bergrún Arna Þorsteinsdóttir formaður, Böðvar Guðmudnsson, Else Möller, Agnes Geirdal og Jón Þór Birgisson.
Stjórnin Sls hefur rætt stöðu og stefnu Suðurlandsskóga í jólatrjáaræktun og telur brýnt að móta reglur hvað varðar aðkomu verkefnisins að jólatrjáarækt á sínu svæði.
Meira |
|
28.1.2009 10:29 Grunnnámskeið í skógræktGrunnnámskeið í skógrækt Landbúnaðarháskóli Íslands í samvinnu við Suðurlandsskóga
Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem eru að fara af stað í skógrækt eða skjólbeltarækt á lögbýlum. Þegar hafið er ræktunarstarf innan skógræktarverkefnis eins og Suðurlandsskóga (Sls) er að mörgu að hyggja fyrir nýja ræktendur. Á þessu námskeiðinu verðu m.a. fjallað um lög og reglugerðir, áætlanagerð, gróðursetningu, jarðvinnslu, áburðargjöf o.fl. Hlutverk svæðisstjóra verður kynnt og sagt frá uppgjörsreglum. Sagt verður frá starfsemi plöntudreifingarstöðva og hvernig úttekt á gróðursetningum fer fram.
Kennarar: Björn B. Jónsson framkvæmdastjóri Sls, Böðvar Guðmundsson áætlanafulltrúi Sls, Hallur Björgvinsson svæðisstjóri Sls og Harpa Dís Harðardóttir svæðisstjóri Sls.
Tími: Lau. 18. apr, kl. 10:00-16:00 (7 kennslustundir) hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, Reykjum, Ölfusi.
Verð: 13.000 kr. (Kaffi, hádegismatur og gögn innifalin í verði)
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 3.000kr (óafturkræft) á reikninginn 1103-26-4237, kt. 411204-3590.
Skráningar: endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími og nafn námskeiðs) eða hafa samband í síma: 433 5000. Meira |
| 28.1.2009 10:17 Tækifæri í kreppunni Í kreppunni leynast ýmis tækifæri ef fólk er hugmyndaríkt og áræðið. Halldór Elís Guðnason skógar-og skjólbeltabóndi á Efra-Seli rifjaði upp handbragðið við að tálga í tré og er að dunda sér við að tálga út verlaunagripi sem nota á í golfmótum sumarsins. Á Efra-Seli er samhliða skógræktinni rekinn ferðaþjónusta og golfvöllur. Gripirnir eru skornir út úr alaskaösp sem verið var að grisja.
Meira |
|
20.1.2009 13:00 Niðurskurður hjá Suðurlandsskógum
Suðurlandsskógar fá á fjárlögum 108 miljónir krónur, sem er 20% lækkun frá fumvarpi til fjárlaga 2009. Ofan á þessa skerðingu á eftir að leggjast skerðing vegna vísitölu.
Ákveðið er að planta 700 þúsund plöntum á þessu ári sem er minnkun um rúmlega 30%.
Á næstu dögum mun starfsfólk Suðurlandsskóga hafa samband við skógarbændur þar sem farið verður yfir gróðursetningar næsta sumar.
Verið er að ganga frá plöntusamningum fyrir árið 2010 þar sem reiknað er með sama plöntumagni og í ár.
Meira |
| 17.11.2008 11:10 Jólatrjáanámskeið í Danmörku Jólatrjáanámskeið í Danmörku
Fimmtán starfsmenn skógargeirans ásamt þremur skógfræðinemum fóru á vikunámskeið í jólatrjáarækt í Danmörku í byrjun nóvember. Námskeiðið var annað námskeið í þriggja námskeiðaröð sem Suðurlandsskógar hafa skipulagt í samvinnu við Danska Landbúnaðarháskólann og LbhÍ.
Allur undirbúningur og framkvæmd námskeiðsins var Dönum til mikillar fyrirmyndar. Kennsla fór fram í fyrirlestraformi og eins með heimsóknum og skoðun hjá jólatrjáræktendum. Margt fróðlegt kom fram á námskeiðinu sem á örugglega eftir að nýtast okkur íslendingum á komandi árum í jólatrjáatækt hér heima.
Suðurlandsskógar vilja færa öllum sem tóku þátt í námskeiðinu bestu þakkir fyrir þátttökuna og undirbúningsaðilum öllum fyrir vel unnin störf.
Meira |
|
27.10.2008 09:57 Nýr samstarfssamningur Suðurlandsskóga og Landbúnaðarháskóla Íslands.jpg) Nýr samstarfssamningur.
Suðurlandsskógar og Landbúnaðarháskóli Íslands hafa undirritað samstarfssamning um val á nýjum tegundum trjáa og runna í skjólbelti og skógarjaðra.
Markmið með samstarfinu er að finna heppilegar tegundir trjáa og runna í skjólbelti og skógarjaðra og skilgreina tegundir og yrki sem eru valin og nýta þannig þekkingu og reynslu sem verður til við rannsóknir og athuganir á garðplöntum til að hanna fjölbreytt og endingargóð skjólbelti og skógarjaðra.
Hugmyndin er að koma á virku samstarfi um bætt skjólbelti, ræktunartækni og plöntugerðir til skjólbeltaræktar, í skógarjaðra, jólatrjáaræktun og þar sem til álita kemur að nota annarskonar plöntugerðir/tegundir en í hefðbundinni nytjaskógrækt.
Til þessa hafa Suðurlandsskógar einna mest notað plöntur af víðiættkvíslinni sem skjólgjafa. Aðrar tegundir hafa verið notaðar í minna mæli. Kosturinn við víðitegundir er að þær eru hraðvaxta og ódýrar í framleiðslu. Smám saman hafa þó komið fram gallar við þessar plöntur eins og að sumar þessara tegunda eru ekki endingagóðar í skjólbeltum og verða fljótt gisnar og lauflausar neðst. Þannig hætta þær að mynda það skjól sem til var ætlast og verða í raun kostnaðarsamar þegar til lengri tíma er litið.
Samstarfsverkefninu milli Suðurlandsskóga og LbhÍ er ætlað að finna til ræktunar heppilegar tegundir og yrki sem ekki eru í almennri notkun hjá Suðurlandsskógum. Hér skilgreinist “heppileg tegund” sem tegund sem eru harðgerðar við sem fjölbreytilegastar aðstæður, þola mismunandi jarðveg og hafa þol gegn sjúkdómum og meindýrum. Auk þess er leitast við að finna tegundir sem eru langlífar, þola takmarkaða umhirðu og hafa hagræn not í skjólbeltarækt og skógarjörðum.
Meira |
| 6.10.2008 13:01 Frætínsla á Suðurlandi Starfsfólk Suðurlandsskóga fór í söfnun á grenifræi nú á haustdögum. Óvenju mikið er af könglum á greni í ár og er efri hluti trjáa hreinlega rauðbrún vegna þessa. Við frætínsluna var notast við lyftu til að ná upp í toppa trjánna til að ná könglunum. Mest var tínt af sitkagreni en eitthvað smávegis af rauðgreni og þin. Verkið gekk mjög vel og eru könglarnir í þurrkun á skemmugólfinu á Snæfoksstöðum. Þegar búið er að ná öllu fræi úr könglunum verður það afvængjað, en síðan sent til Noregs í flokkun, spírunarprófun og geymslu.
Ef fer sem horfir þá má reikna með að Suðurlandsskógar verði með nokkurra ára byrgðir af grenifræi eftir þessa fræsöfnun.
Meira |
|
20.6.2008 16:26 Jónsmessuganga Félags skógarbænda á Suðurlandi
Þriðjudaginn 24. júní 2008, kl. 20:00
Félagi skógarbóndi.
Að þessu sinni verður farið í Jónsmessugöngu á Galtalæk í Biskupstungum, Árnessýslu.
Á Galtalæk búa hjónin Njörður Geirdal og Sigurbjörg Snorradóttir og hafa þau ásamt afkomendum verið að stinga þar niður plöntum síðastliðin 20 ár.
Gengið verður í ca. 2 tíma og ágætt væri að vera í góðum gönguskóm og fötum eftir veðri.
Fyrir þá sem eiga erfitt um gang er hægt að fara hluta úr leiðinni í bíl.
Eftir göngu heldur skógræktin á Galtalæk upp á 20 ára afmæli og býður í grill og ketilkaffi.
Allir velkomnir, gestir og gangandi
Hlökkum til að sjá ykkur.
Stjórn Félags skógarbænda á Suðurlandi
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síðasta lagi sunnudaginn 22. júní.
Í netföng agnesg@simnet.iseða bjorn@sudskogur.is
agnesg@simnet.iseða bjorn@sudskogur.is
Í síma hjá Agnesi 864-0923
Meira |
| 20.6.2008 16:17 Skógardagurinn mikli .jpg) Skógardagurinn mikli verður haldinn hátíðlegur á flötinni í Mörkinni á Hallormsstað laugardaginn 21 júní. Dagskráin er metnaðarfull og fjölbreytt að vanda og boðið verður upp á fríar veitingar við flestra hæfi. Allir eru velkomnir á hátíðina. Sjá nánar á heimasíðu Héraðsskóga http://heradsskogar.is/ |
|
13.5.2008 13:38 Málþing um brunavarnir í skógi Meira |
| 29.4.2008 12:09 Nýr fáni Félags skógarbænda á Suðurlandi Agnes Geirdal formaður Félags skógarbænda á Suðurladi afhenti Landsamtökunum skógareigenda og öðrum skógarbændafélögum nýjan fána félagsins. Félag skógarbænda hafði staðið fyrir samkeppni varðandi merki félagsins. Nokkrar tillögur bárust og sú sem vann samkeppninga var merki sem Geir Thorsteinsson hannaði. Stofn trésins túlkaði hönnuðurinn sem undirstöðu félagsins og laufblöðin sem félagsmenn sem þétta sig við stofninn. Meira |
|
22.4.2008 15:49 Ný heimasíða Landssamtaka skógareigenda Heimasíða hjá LSE.
Á aðalfundi Landssamtaka skógareigenda í byrjun apríl var ný heimasíða samtakanna opnuð. Slóðin er http://www.skogarbaendur.net Meira |
| 22.4.2008 15:44 Vel heppnuð fagráðstefna skógargeirans.jpg) Fagráðstefnan í skógrækt tókst vel.
Eins og fram hefur komið þá tókst fagráðstefnan í skógrækt vel sem haldin var á Hvolsvelli í byrjun apríl. Eitthundrað og sjötíu manns sótti ráðstefnuna og tuttugu og fimm fyrirlesarar voru með erindi. Þetta var áttunda fagráðstefnan í skógrækt og sú fjölmennasta hingað til. Mikið af ungu fólki sótti ráðstefnuna sem er ákveðin vísbending um mikla og góða endurnýjun í greininni á næstu árum.
Starfsfólk Hótel Holsvallar á mikið hrós skilið fyrir allan viðurgerning á staðnum og að sjálfsögðu líka starfsfólk Suðurlandsskóga og aðrir sem unnu við ráðstefnuna.
Næsta ráðstefna verður haldin á Reykjavíkursvæðinu á svipuðum tíma að ári. Skógrækt ríkisins, LbhÍ og Skógræktarfélag Íslands munu standa að ráðstefnunni. Ráðstefnan er árleg, en fer á milli landshluta.
Undirritaður bendir á myndir af ráðstefnunni sem Agnes Geirdal tók á slóðinni; http://www.flickr.com/photos/ageirdal/sets/72157604423842492
Með kveðju og þakklæti.
Björn B. Jónsson framkvæmdastjóri Sls
Meira |
|
8.4.2008 12:08 Fagráðstefna skógargeiransFagráðstefna skógargeirans var haldin á Hvolsvelli dagana 3.-4. apríl. Mikið fjölmenni sótti ráðstefnuna sem þótti takast mjög vel. Agnes Geirdal formaður Félags skógarbænda á Suðurlandi tók mikið af myndum á ráðstefnunni og þeir sem hafa áhuga á að skoða þær geta smellt á linkinn hér að neðan.
Meira |
| 26.3.2008 09:42 Aðalfundur Landssamtaka skógareigenda Ágætu skógareigendur.
Aðalfundur Landssamtaka skógareigenda verður haldinn á Hvolsvelli 4. og 5. apríl n.k.
Þátttakendur eru beðnir að tilkynna sig á Hótel Hvolsvöll í tölvupóstfangið hotelhvolsvollur@simnet.is eða í síma 487 8050.
Kostnaður á mann í tvær nætur í tveggja manna herbergi er kr 13.550.- á mann og 18.550.- í eins manns herbergi. Innifalið er allur fundarkostnaður, gisting, morgunmatur, kaffi, kvöldmatur, hádegismatur, hátíðarkvöldverður og ferð í Haukadal.
Kostnaður við fagráðstefnu í skógrækt sem haldin er 3. og 4. apríl á Hvolsvelli er ekki innifalinn í þessu verði.
Dagskrá aðalfundar LSE:
Föstudagur 4. apríl
16:00Fundur settur í Hvolnum Hvolsvelli. 16:15 Kosnir starfsmenn fundarins. 16:15 Mál lögð fyrir fundinn.
17:00 Nýjar áherslur í skógrækt – brunavarnir í skógi/erindi og umræður.
18:00Skipað í nefndir fundarins og málum vísað til nefnda. 18:15Fundi frestað. Nefndir hefja störf. 19:30Kvöldmatur. 20:30Framhald nefndarstarfa. 20:30 Hvolsvöllur - Menning og saga. Ætlað mökum fundarmanna og öðrum fundargestum sem hafa lokið nefndarstörfum.
Laugardagur 5. apríl 08:00Morgunverður. 09:00Framhald aðalfundar. Skýrsla stjórnar. 09:45 Ávörp gesta. Kaffi. 10:30Nefndir skila álitum. 11:15Kosningar: -Tveir menn í stjórn, -þrír menn í varastjórn, -tveir endurskoðendur. 11:30 Önnur mál. 12:00Fundarlok.
12:15Hádegismatur.
13:00Ferð í Haukadal - skógarskoðun, grill, söngur. -Fararstjórar um sveitir: Hallur Björgvinsson, Harpa Dís Harðardóttir, Björn B. Jónsson. -Leiðsögn í Haukadal: Böðvar Guðmundsson og Hallur Björgvinsson.
19:00Komið á Hvolsvöll. 19:45 Fordrykkur í Sögusetrinu. 20:15Árshátíð skógarbænda. Veislustjóri: Ísólfur Gylfi Pálmason.
Meira |
|
12.3.2008 14:23 Fagráðstefna skógargeiransFagráðstefna skógargeirans haldin á Hvolsvelli 3. til 4. apríl 2008.
Dagskrá:
Fimmtudagur 3. apríl – Fundarsalur í Hvolnum
Ráðstefnustjórar: Björgvin Eggertsson og Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
09:00 Ráðstefnugögn afhent
09:15 Setning:
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra.
09:20 Aukin skógrækt á Íslandi í ljósi loftslagsbreytinga:
Þorsteinn Tómasson skrifstofustjóri
09.30 Sala á kolefnisbindingu: Alþjóðlegur markaður með bindingu kolefnis
í skógum:
Ari Skúlason ráðgjafi LÍ.
9:50 Skógrækt á auðnum Suðurlands og nýjungar í fjármögnun hennar:
Einar Gunnarsson, skógfr. Skógræktarfélagi Íslands, Sigríður
Heiðmundsdóttir formaður Skógræktarfélags Rangæinga og Soffía Waag
Árnadóttir, framkvæmdastjóri Kolviðar.
10:10 Kaffihlé.
10:25 Rannsóknir á kolefnisbindingu í íslenskum skógum:
Brynhildur Bjarnadóttir sérfræðingur á Mógilsá, Jón Ágúst Jónsson forstöðumaður Náttúrustofu Austurlands og Bjarni D. Sigurðsson prófessor við LbhÍ.
10:45 Kolefnisbókhald skóga Íslands:
Arnór Snorrason sérfræðingur Mógilsá.
11:05 Líffræðileg fjölbreytni í kjölfar skógræktar:
Edda S. Oddsdóttir jarðvegslíffræðingur Mógilsá.
11:25 Umræður.
12:00 Hádegisverður.
13:00 Framsetning þekkingar í nútíð og framtíð:
Þröstur Eysteinsson fagmálastjóri Skógræktar ríkisins.
13:10 Líforka úr skógum: Nýir markaðir fyrir skógarafurðir. Hvað er að gerast á alþjóðavettvangi og hverjir eru möguleikarnir:
Bjarni Diðrik Sigurðsson prófessor við LbhÍ.
13:30 Áform íslenska lífmassafélagsins um opnum og rekstur verksmiðju á
Íslandi:
Valdimar K. Jónsson Prófessor við HÍ.
13:50 Hefur skógrækt áhrif á vatnalíf? :
Helena Marta Stefánsdóttir meistaranemi við LbhÍ, Jón S. Ólafsson, sérfræðingur á Veiðimálastofnun og Gísli Már Gíslason prófessor við HÍ.
meistaranemi við LbhÍ, Jón S. Ólafsson, sérfræðingur á Veiðimálastofnun og Gísli Már Gíslason prófessor við HÍ.
14:10 Stærð skóglendis á Íslandi:
Björn Traustason sérfræðingur á Mógilsá.
14:30 Kaffihlé.
14:45 Hitastigsþröskuldur fyrir skógarmörk á Íslandi:
Christoph Wöll ráðgjafi hjá Skógráð ehf..
15:05 Breytt veðurfar og skaðvaldar:
Guðmundur Halldórsson rannsóknarstjóri Lr og Halldór Sverrisson plöntusjúkdómafræðingur á Mógilsá og lektor við LbhÍ.
15:30 Umræður.
16:45 Farið í Gunnarsholt.
17:00 Boð Landgræðslunnar í Gunnarsholt.
18:30 Farið frá Gunnarsholti.
19:30 Fordrykkur í Sögusetrinu.
20:00 Kvöldverður á Hótel Hvolsvelli.
Föstudagur 4. apríl – fundarsalur í Hvolnum.
09:00 Ilmreynir -Sorbus aucuparia. Kvæmarannsóknir:
Harpa Dís Harðardóttir svæðisstjóri Suðurlandsskóga og nemi við LbhÍ.
09:10 Skemmdir á trjágróðri af völdum ertuyglu:
Hrönn Guðmundsdóttir svæðisstjóri Suðurlandsskóga og nemi við LbhÍ.
09:20 Mat á lifun og árangri hjá landshlutaverkefnunum á Norður- og Austurlandi: Bergsveinn Þórsson svæðisstjóri Norðurlandsskóga og nem við LBHI og Valdimar Reynisson meistaranemi í skógfræði við Sænska landbúnaðarháskólann og LbhÍ.
09:40 Yndisgróður - Runnar og tré fyrir skjólbelta-, útivistar- og borgarskógrækt:
Jón Kr. Arnason verkefnisstjóri við LbhÍ og Samson Bjarnar Harðarson landslagsarkitekt F.Í.L.A./Lektor í landslagsarkitektúr LbhÍ.
10:00 Þáttur sveppróta í uppeldi plantna og uppgræðslu lands:
Úlfur Óskarsson lektor við LbhÍ.
10:20 Kaffihlé.
10:40 Aðferðir við mat á gæðum skógarplantna:
Hrefna Jóhannesdóttir sérfræðingur á Mógilsá.
11:00 Geymsla tjáplantna á frysti:
Rakel Jakobína Jónsdóttir meistaranemi í skógfræði við Sænska landbúnaðarháskólann og LbhÍ og starfsmaður Norðurlandsskóga og Hallur Björgvinsson svæðisstjóri Suðurlandsskóga.
11:30 Betri tré: Klóna- og kvæmaval á trjátegundum til skógræktar, m.a. með tilliti til viðnámsþrótts gegn ýmsum plágum:
Halldór Sverrisson plöntusjúkdómafræðingur á Mógilsá og lektor við LbhÍ og Aðalsteinn Sigurgeirsson skógerfðafræðingur á Mógilsá .
11:50 Umræður.
12:15 Hádegisverður.
13:15 Ræktunarland í framtíðinni.
Áslaug Helgadóttir prófessor og deildarforseti Auðlindadeildar við LbhÍ
13:30 Flokkun lands eftir framleiðslugetu:
Torfi Jóhannesson verkefnisstjóri Vaxtasamnings Vesturlands.
13:50 Umræður.
14:15 Pallborð: allir fyrirlesarar.
Stjórn umræðu: Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir og Sveinn Runólfsson.
15:00 Ráðstefnuslit.
Þátttakendur eru beðnir að tilkynna sig á Hótel Hvolsvöll í tölvupóstfangið hotelhvolsvollur@simnet.iseða í síma 487 8050.
hotelhvolsvollur@simnet.iseða í síma 487 8050.
Rástefnugjald er krónur 16.000.- (18.000.- í eins manns herbergi)
Innifalið: Ráðstefnugögn, gisting eina nótt í tveggja manna herbergi á Hótel Hvolsvelli, morgunverður, hádegisverðir, hátíðarkvöldverður með fordrykk og tónlist, kaffi/te og ávextir og grænmeti á meðan ráðstefnu stendur.
Aukagistinótt með morgunmat krónur 4000.- á mann í tveggja manna herbergi, 7000 krónur í eins manns herbergi.
Ef gisting verður ekki nægileg á Hótel Hvolsvelli þá verður séð fyrir sambærilegri gistingu í nágrenni Hvolsvallar.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna eru veittar á netfanginu bjorn@sudskogur.iseða í síma 480 1800.
bjorn@sudskogur.iseða í síma 480 1800. Meira |
| 6.3.2008 11:15 Aðalfundur Félags siógarbænda. Aðalfundur Félags skógarbænda á Suðurlandi verður haldinn á Þingborg fimmtudaginn 6.mars kl. 20.30. Almenn aðalfundarstörf. Stjórnin
|
|
11.2.2008 16:08 Námskeið fyrir skógræktendurFjölbreyttari og betri plöntur til íbóta í skógrækt? Í samvinnu við Félag skógarbænda á Suðurlandi og með stuðningi frá Suðurlandsskógum.
Námskeiðið er eingöngu ætlað skógræktendum sem stunda skógrækt eða skjólbeltarækt á starfssvæði Suðurlandsskóga. Á námskeiðinu verða kynntar ýmsar tegundir trjáa og runna sem lítið eru notaðar í hefðbundinni skógrækt, en eru oft heppilegar sem íbætur í einsleita skóga. Tegundir þessar geta gefið skóginum og skógarköntum mýkri ásýnd og fjölbreytileika hvort sem verið er að rækta timburskóg eða útivistarskóg. Tegundirnar geta t.d. aukið haustliti og fæðuframboð skógarins. Kostir tegundanna geta falist m.a. í harðgerði, fegurð, heilbrygði, þörf á umhirðu og sambýlishæfni með öðrum tegundum. Farið verður í gegnum hvaða möguleikar er fyrirsjáanlegir við hagstæðari ræktun þessara tegunda. Einnig verður fjallað um plöntugæði. Farið verður yfir hvaða þýðingu frysting skógarplantna hefur fyrir þá sem nota þær, bæði hvað varðar umhirðu þeirra fyrir gróðursetningu og eins gróðursetninguna sjálfa.
Kennarar: Samson Bjarnar Harðarson garðplöntufræðingur, landslagsarkitekt og lektor í landslagsarkitektúr við Landbúnaðarháskóla Íslands, Jón Kr. Arnason garðplöntufræðingur og verkefnisstjóri Yndisgróðurs við Landbúnaðarháskóla Íslands og Hallur Björgvinsson garðplöntufræðingur og svæðisstjóri hjá Suðurlandsskógum.
Tími: Lau. 23. feb. kl 10:00 -16:00 (7 kennslustundir) á Reykjum í Ölfusi.
Verð: 10.000 kr. (veitingar og kennslugögn innifalið) Í beinu framhaldi af námskeiðinu (kl 16 og 17) verða tvær stuttar kynningar. Agnes Geirdal formaður Félags skógarbænda á Suðurlandi um kynna félagið, þá mun Björn B. Jónsson framkvæmdastjóri Suðurlandsskóga fjalla um það sem er efst á baugi hjá Suðurlandsskógum.
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 2.000 kr. (óafturkræft) á reikning 1103-26-4237, kt. 411204-3590.
Skráningar á endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími og hvaða námskeið) eða í síma 433 5000.
|
 Samson B. Harðarson
 Jón Kr. Arnason
 Hallur Björgvinsson
| Meira |
| 11.2.2008 15:17 Mannabreytingar í stjórn Sls..jpg)
- Mannbreytingar í stjórn Sls.
Þorbergur Hjalti Jónsson nýráðinn skógarvörður á Suðurlandi tekur sæti í stjórn Suðurlandsskóga sem fulltrúi S.r. í stað Hreins Óskarssonar.
Formaður þakkaði Hreini góðs störf og bauð Þorberg Hjalta velkominn í stjórn Sls.
Meira |
|
1.2.2008 15:49 Tilboð í grisjunSkógrækt ríkisins óskar eftir tilboðum í grisjun. 
Skógrækt ríkisins auglýsir eftir tilboðum í grisjun í eftirfarandi umdæmum:
1. Skógrækt ríkisins á Austurlandi:
Grisjun í Hallormsstaðaskógi, 4.72 ha. Tilboðsgögn fást á skrifstofu Skógræktar ríkisins á Hallormsstað. tilboðsfrestur er til 15.febrúar, 2008.
Sími: 471 1774/ 892 3535
2. Skógrækt ríkisins á Suðurlandi:
Grisjun í Haukadalskógi, 4.5 ha. Tilboðsgögn fást á skrifstofu Skógræktar ríkisins á Selfossi. Tilboðsfrestur er til 15.febrúar 2008
Sími:480 1821/864 1102
3. Skógrækt ríkisins á Vesturlandi:
Grisjun í Selskógi, 4.48 ha. Tilboðsgögn fást á skrifstofu Skógræktar ríkisins á Hreðavatni.
Tilboðsfrestur er til 15.febrúar 2008.
Sími: 435 0047/893 3229
Óskað er eftir tilboðum í hvert einstakt verkefni. Tilboðum skal skila á skrifstofu
Skógræktar ríkisins, Miðvangi 2-4 701 Egilsstaðir.
Tilboðin verða opnuð á sama stað mánudaginn 18. febrúar 2008, kl. 13:00.
Meira |
| 29.1.2008 10:08 GrisjunarnámskeiðÞriggja daga námskeið þar sem nemendur vinna með keðjusög og grisja Endurmenntunardeild Landbúnaðarháskóla Íslands vill vekja athygli á námskeiði sem haldið verður á vegum skólans núna í febrúar.
Trjáfellingar og grisjun með keðjusög
Námskeiðið er öllum opið. Það hentar þeim sem ekkert kunna á keðjusög og vilja læra á þær. Einnig þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða vilja öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga. Hámarksfjöldi þátttakenda er 12.
Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Fyrsti dagur er bóklegur þar sem meðal annars er farið yfir fellingartækni og öryggisatriði við fellingu trjáa. Leyfi og öryggissjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli. Einnig verður fjallað um val á trjám til fellinga og komið inná grisjun skóglenda, trjáþyrpinga og garða. Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar með því að taka þær í sundur. Komið verður inná hvernig framkvæma eigi einfalda bilanaleit í söginni, ásamt því að læra hefðbundið viðhald, þrif sagar og brýningu keðju. Loks verður einn og hálfur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi.
Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm taki það með á námskeiði. Aðrir geta fengið búnað lánaðan á námskeiðinu.
Kennarar: Björgvin Örn Eggertsson skógræðingur við LbhÍ, Böðvar Guðmundsson skógtæknir hjá Suðurlandsskógum og Þorkell Gunnarsson skrúðgarðyrkjumeistari.
Tími: Mán. 18. feb. kl. 09:00-16:00, þri. 19. feb. kl. 09:00-17:30 og mið. 20. feb. 09:00-17:30 (3x) á Reykjum, Ölfusi (26 kennslustundir). Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til 1 einingar af námi í garðyrkjufræðum. Skráningarfrestur er til 14. febrúar.
Verð: 38.000 kr. Meira |
|
4.12.2007 14:09 Skáldmæltur skógarbóndi á SuðurlandiÍ tilefni að því að tíu ár eru frá lagasetningu Suðurlandsskóga hefur árangur í skógrækt orðið Guðna Guðmundssyni skógarbónda með meiru á Þverlæk í Rangárvallasýslu að yrkisefni. Okkur hjá Suðurlandsskógum bárust nokkrar vísur frá Guðna og byrtast þær hér að neðan.
Meira |
| 18.10.2007 09:24 Hausttilboð til skógræktendaBækurnar Lauftré á Íslandi og Barrtré á Íslandi  Við hjá útgáfufyrirtækinu Sumarhúsinu og garðinum ehf bjóðum skógræktendum bækurnar Lauftré á Íslandi og Barrtré á Íslandi á sérstöku hausttilboði.
Bækurnar kosta í lausasölu krónur 2700 krónur stk., en þessa dagana bjóðum við skógræktendum báðar bækurnar saman á pakkatilboði á aðeins 4550 krónur (sendingarkostnaður innifalinn).
Lauftré á Íslandi
Lauftré á Íslandi er önnur bókin í ritröðinni Við ræktumsem Sumarhúsið og garðurinn ehf gefur út. Í bókinni er fjallað á skýran og aðgengilegan hátt um 54 tegundir lauftrjáa sem eru í ræktun og geta náð að minnsta kosti 5 metra hæð hér á landi.
Tegundirnar eru ýmist vel kunnar eða lítt reyndar en allar geta þær þrifist vel við íslenskar aðstæður. Fjallað er um uppruna tegundanna, reynslu af ræktun þeirra á Íslandi, erfðafræðilega þætti, fjölgun, umhirðu og þrif. Auk þess er fjallað um fánuna sem sækir í trén; skordýrin og fuglana sem nærast á berjum og fræjum trjánna. Bókiner ríkulega myndskreytt og auðlesin og gagnast vel fag- og áhugamönnum um trjárækt.
Fagmenn með mikla reynslu og þekkingu á sviði trjáræktar miðla upplýsingum. Ritstjóri bókarinnar og einn aðalhöfunda er Auður I. Ottesen garðyrkjufræðingur. Aðrir höfundar texta eru menntaðir á sviði garðyrkju, skógræktar og umhverfismála, auk þess sem tveir sérfræðingar á sviði plöntusjúkdóma og skordýra skrifa í bókina. Bókiner112 síður.
Barrtré á Íslandi Barrtré á Íslandi er þriðja bókin í ritröðinni Við ræktum sem Sumarhúsið og garðurinn ehf gefur út. Í bókinni er fjallað um 5 ættkvíslir barrtrjáa og 34 tegundir sem eru í ræktun hér á landi. Það eru tegundir sem ýmist eru vel kunnar eða lítt reyndar en talið að geti þrifist við íslensk skilyrði. Barrtrén hafa víða vaxið vel á Íslandi - fjórar tegundir hafa náð yfir 20 m hæð og keppa um sæti hæsta trés á landinu.
Í bókinni er fjallað um uppruna tegundanna, afdrif þeirra á Íslandi, eðli og gerð, fjallað um fjölgun, erfðafræðilega þætti, umönnun, þrif og fuglana sem flögra í trjánum og nærast á afurðum þeirra, skordýr sem sækja á trén og sjúkdóma sem valda þeim skaða. Allt eru þetta upplýsingar sem auðvelda lesandanum að átta sig á þeim fjársjóði sem úr er að velja þegar kemur að vali barrtrjáa í garðinn, sumarhúsalandið, í skjólbeltið eða skógræktina - upplýsingar sem fagmenn miðla af reynslu og þekkingu.
Bókina prýðir fjöldi litmynda úr íslenskum skógræktarsvæðum, görðum og náttúru. Barrtré á Íslandi er tvímælalaust mikill fengur fyrir þá sem láta sig gróður varða, hvort sem það eru fagmenn eða áhugamenn.
Aðalhöfundar eru þau Auður I Ottesen garðyrkjufræðingur, sem einnig ritstýrir bókinni, og Þórarinn Benedikz skógfræðingur. Aðrir höfundar texta eru menntaðir á sviði garðyrkju, skógræktar og umhverfismála, auk þess sem tveir sérfræðingar á sviði plöntusjúkdóma og skordýra skrifa í bókina. Bókin er 144 síður.
Hafðu samband Áhugasömum er bent á að hafa samband við Hildi hjá Sumarhúsinu og garðinum í síma 586-8003 eða með því að senda tölvupóst á hildur@rit.is
Með von um góðar viðtökur á haustdögum.
Bestu kveðjur,
Hildur Arna Gunnarsdóttir Sumarhúsið og garðurinn ehf Síðumúli 15 108 Reykjavík 586-8003
hildur@rit.is http://www.rit.is/
Meira |
|
11.10.2007 08:25 HugmyndasamkeppniFélag skógarbænda á Suðurlandi efnir til hugmyndasamkeppni um merki fyrir félagið.
Merkið þarf að vera í litunum “pantone 343,356,368” en að öðru leiti algjörlega frjálst.
Þátttakendur skili tillögum sínum á skrifstofu Suðurlandsskóga undir dulnefni ásamt réttu nafni í lokuðu umslagi.
Stjórn Félags skógarbænda á Suðurlandi áskilur sér allan rétt til að taka hvaða tillögu sem er eða hafna þeim öllum.
Verðlaun verða fyrir fyrsta, annað og þriðja sætið.
Skilafrestur er til 15. nóvember 2007
Stjórn Félags skógarbænda á Suðurlandi
Meira |
| 21.9.2007 14:52 ,,Landsmót” verkefnanna. Hið árlega Landsmót Landshlutaverkefnanna í skógrækt var haldið í Skagafirði í byrjun 38 viku ársins. Starfsfólk Norðurlandsskóga sá um skipulagninguna, sem í stuttu máli má segja að hafi verið frábæri í alla staði. Takk Norðurlandsskógar.
Meira |
|
13.8.2007 11:41 Aðalfundur landssambands skógareigendaTíundi aðalfundur Landssambands skógareigenda Tíundi aðalfundur Landssambands skógareigenda verður haldinn á Reykhólum 24-26 ágúst. Aðalfundurinn verður haldinn í Grunnskólanum á Reykhólum, þar verður einnig árshátíð á laugardagskvöldið. Þema fundarinns verður "Menntun skógarbænda, Grænni skógar" Gistingu er hægt að fá á hóteli Bjarkarlundi sími 434-7762, Gistiheimilinu Álftalandi sími 434-7878 og í Bændagistingu Miðjanesi sími 434-7787 og 893-7787 Meira |
| 27.6.2007 10:38 Skógarbændum er margt til lista lagt. Skógarbændur gera ýmislegt annað en að planta skógi og er margt til lista lagt. Góður skógarbóndi í Rangárvallasýslu, Meira |
|
18.6.2007 15:52 Jónsmessuganga 24. júní 2007 Skógarbændur á Suðurlandi og annað áhugafólk um skógrækt.
Jónsmessuganga skógarbænda á Suðurlandi verður haldin sunnudaginn 24. júní 2007 að Ásgerið í Hrunamannahrepp. Þar munu skógarbændurnir Sigurður Jónsson og Guðrún Guðmundsdóttir taka á móti okkur og ganga með okkur um skógræktina sína.
Meira |
| 8.6.2007 10:09 Menzi Muck Gróðursetningarvélin Menzi Muck er farin af stað í gróðursetningar fyrir skógarbændur á Suðurlandi. Um þessar mundir er hún að gróðursetja á jörðinni Hemrumörk í Vestur-Skaftafellssýslu en þar stendur til að gróðursetja um 10-12 þúsund plöntur.
Meira |
|
6.6.2007 14:48 10 ár frá setningu laga um Suðurlandsskóga
Í ár eru liðin 10 ár frá setningu laga um Suðurlandsskóga. Af því tilefni var haldin í gær afmælissamkoma úti í skóginum á Gljúfri í Ölfusi.
Meira |
| 5.6.2007 10:40 Útskrift Grænni skóga l á Reykjum í Ölfusi Vildu bæta við sig þekkingu í skógrækt
Fyrir skömmu útskrifuðust 20 nemendur af námskeiðaröðinni Grænni skógar I á Suðurlandi. Útskriftin fór fram á Reykjum í Ölfusi. Hér er um að ræða skógræktarnám á vegum Starfs- og endurmenntunardeildar Landbúnaðarháskóla Íslands. Námið hefur staðið yfir síðan haustið 2004 og hafa nemendur sótt allt að 15 námskeið á þessum tíma.
Meira |
|
29.5.2007 13:50 Ketilkaffi og kleinur úti í skógi10 ára afmæli Suðurlandsskóga  Skógarbændur / sunnlendingar.
Í tilefni af því að 10 ár eru liðin frá setningu laga um Suðurlandsskóga þá býður stjórn og starfsmenn verkefnisins í ketilkaffi og kleinur úti í skógi. Af sama tilefni verður ný plöntunarvél sýnd, farið verður yfir starf Suðurlandsskóga frá byrjun og sagt frá því sem er efst á baugi.
Hittumst á Gljúfri Ölfusi þriðjudaginn 5. júní klukkan 15.00 til 17.00.
Meira |
| 9.5.2007 16:08 Heimsókn í Kew Garden Helgina 4.-6. maí síðastliðinn efndu Suðurlandsskógar til ferðar til London. Var megintilgangur ferðarinnar að heimsækja Kew Garden, en það er rúmlega 200 ára gamall garður í suðvesturhluta borgarinnar. Er hann einn af merkustu görðum í heiminum og er á heimsminjaskrá Unesco.
Ferðin tókst vel í alla staði og voru þátttakendur 10 talsins og leiðsögumaður hópsins um Kew Garden var Aðalsteinn Sigurgeirsson á Mógilsá.
Valgerður Erlingsdóttir.
Meira |
|
23.4.2007 13:12 Fyrstu gróðursetnngar hafnar hjá SuðurlandsskógumGróðursetning á Ytra-Seljalandi  Fyrstu gróðursetningar vorsins eru hafnar hjá Suðurlandsskógum. Skógarbændur á Ytra – Seljalandi í Rangárvallasýslu riðu á vaðið og hófu gróðurssetningar í landi sínu föstudaginn 13 apríl síðastliðinn. Allt gekk vel og gróðursettar voru rúmlega 7000 sitkagreniplöntur svona í fyrsta holli.
Meira |
| 23.4.2007 12:58 Stjórnarfundur Sls 17. apríl 2007 Frystar skógarplöntur skoðaðar Stjórn Suðurlandsskóga fór þriðjudaginn 17. apríl og skoðaði frystingu trjáplantna. Farið var að Kvistum og Furubrún, en þessar tvær stöðvar eru að frysta u.þ.b. 200 þús plöntur fyrir Suðurlandsskóga.
Meira |
|
23.4.2007 11:30 Undirritun samnings Grænni skóga Nýr samstarfssamningur um Grænni skóga Nýr samstarfssamningur Landbúnaðarháskólans, Skógræktar ríkisins, Landgræðslu ríkisins, Landssamtaka skógareigenda og landshlutabundnu skógræktarverkefnanna var undirritaður á Reykjum á sumardaginn fyrsta. Meira |
| 27.3.2007 08:35 Skógræktarráðstefna  Ráðstefna skógarmanna var haldin á Eiðum í síðustu viku. Fjölmenni var á vel skipulagðri og góðri ráðstefnu. Allur undirbúningur og framkvæmd var heimamönnun til mikils sóma.
Suðurlandsskógar munu standa að ráðstefnunni á næsta ári.
|
|
15.3.2007 08:52 Grænni skógar l.Skógarhöggstækni. Námskeiðið skógarhöggstækni fjallar um grisjun í eldri skógarreitum. Farið verður yfir umhirðu og viðhald kjarr- og keðjusaga. Sagt verður frá helstu öryggisatriðum sem þarf að hafa í huga við grisjun. Einnig verður verkleg grisjunarkennsla.
Meira |
| 15.3.2007 08:40 Grunnnámskeið í skógrækt Laugardaginn 21. apríl verður haldið grunnnámskeið í skógrækt. Námskeiðið verður haldið á Reykjum í Ölfusi og er frá 10:00-16:00. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar veitir Björgvin Eggertsson í síma 433-5305 eða netfangið; bjorgvin@lbhi.is Meira |
|
5.2.2007 11:42 Suðurlandsskógar - yfirlit ársverka.
| Ýmsar lykiltölur |
1998 |
1999 |
2000 |
2001 |
2002 |
2003 |
2004 |
2005 |
|
| Fjárveiting í miljónum króna |
20,8 |
30 |
45,7 |
70,9 |
78,9 |
89,7 |
98,7 |
115 |
|
| Heildarfjöldi gróðursettra plantna |
429.217 |
613.326 |
737.815 |
772.337 |
977.703 |
1.058.340 |
1.031.673 |
1.189.106 |
| Meira |
| 22.1.2007 16:45 Ráðstefna haldin á Austurlandi Fagráðstefna í skógræktHin árlega Fagráðstefna skógræktar verður haldin á Austurlandi í ár eða nánar tiltekið á Eiðum þann 22. og 23. mars næstkomandi. Upplegg ráðstefnunnar að þessu sinni er með þeim hætti að fyrri daginn verður þema ráðstefnunnar Skógur er meira en tré, efnahagsleg og samfélagsleg áhrif skógræktar, en seinni daginn verður haldin almenn fagráðstefna þar sem til umfjöllunar verður allt það nýjasta sem lýtur að þróun og rannsóknum í skógrækt.
Meira |
|
11.1.2007 11:11 Frysting skógarplantna Fyrstu plönturnar inn á frysti í desember
Nú í desember var byrjað að frysta fyrstu plönturnar fyrir Suðurlandsskóga samkvæmt samningi sem gerður var við Sigurð Ásgeirsson á Furubrún.
Meira |
| 11.12.2006 13:21 Kynning á nýju fjölnota skógarvélinni Samhliða útgáfuhátíðinni og kynningu á skógarbókinni á Landbúnaðarháskólanum á Reykjum kynntu Suðurlandsskógar og verktakafyrirtækið Græni drekinn nýja fjölnota skógarvél, þá fyrstu sinnar tegundar á Íslandi.
Meira |
|
11.12.2006 11:40 Útgáfuhátíð og kynning á Skógarbók Grænni skóga Föstudaginn 8 desember kom út Skógarbók Grænni skóga, kennslu og handbók um skógrækt. Bókin byggir á hugmyndum Grænni skóga, sem hafa verið í gangi frá 2001 á vegum Garðyrkjuskólans og Landbúnaðarháskóla Íslands í samstarfi við Skógrækt ríkisins, Landgræðslu ríkisins og landshlutabundnu skógræktarverkefnanna.
Meira |
| 5.12.2006 10:27 Félagsfundur Félags skógarbænda á Suðurlandi Kæru skógarbændur
Haldinn var alveg frábær félagsfundur á Þingborg þann 23.nóv. 2006 og mættu rúmlega 20 manns.
Meira |
|
12.10.2006 11:37 Fjölnota vél til skógræktar Ný vél að koma til landsinsMensi Muck  Á næstunni kemur til landsins ný vél “Mensi Muck”. Um er að ræða skurðgröfu sem á er hægt að festa tæki til fjörbreyttra nota í skógrækt. Í stað hefðbundinna belta eru gúmmíhjól á vélinni sem hvert um sig er á sjálfstæðum fæti, sem hægt er að hreyfa í allar áttir. Þetta gerir að verkum að vélin getur ferðast um í miklum bratta, klofað yfir skurði og klifrað upp á vörubílspall. Hún stendur alltaf lárétt hvernig sem undirlagið er. Þessi vél hefur þríþætt hlutverk;
Meira |
| 12.10.2006 11:20 Ný stjórn SuðurlandsskógaSkipuð hefur verið ný stjórn Suðurlandsskóga. Landbúnaðarráðuneytið skipar þriggja manna stjórn fyrir hvert landshlutaverkefni. Einn stjórnarmanna skal vera tilnefndur frá Félagi skógarbænda, annar af Skógrækt ríkisins og þriðji án tilnefningar.
Meira |
|
28.9.2006 11:05 Landsmót skógræktarverkefnanna Gönguferð í BæjarstaðaskógMekka birkisins  Starfsmenn landshlutaverkefnanna í skógrækt hittist nú um miðjan september á sínu árlega landsmóti verkefnanna. Meira |
| 5.9.2006 10:45 Grænni skógar Námsferð til Írlands Nemendur Grænni skóga á Suðurlandi fóru í lok ágúst í viku námsferð til Írlands. Ferðin var afar skemmtileg og velheppnuð í alla staði.
Meira |
|
11.7.2006 15:28 Skrifstofa Suðurlandsskógar Lokuð vegna sumarleyfaSkrifstofa Suðurlandsskóga verður lokuð dagana 24. júlí til 8. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks.
Meira |
| 11.7.2006 15:22 Gróðursetningar 2006 Tafir á gróðursetningumGróðursetningar á starfsvæði Suðurlandsskóga hafa ekki gengið sem skildi nú í vor vegna erfiðrar veðráttu. Meira |
|
20.6.2006 11:51 Skógardagurinn mikli Fréttatilkynning24. júní 2006 Laugardaginn 24. júní næstkomandi, verður blásið til einstakrar skógarhátíðar í stærsta og þekktasta skógi landsins, Hallormsstaðaskógi en í ár eru liðin 36 ár síðan blómleg bændaskógrækt hófst á Héraðið. Síðan þá hefur skógræktariðnaðurinn vaxið og dafnað á svæðinu og er nú svo komið að þar er ekki aðeins að finna Íslands stærsta og þekktasta skóg, Hallormsstaðaskóg, heldur jafnframt eitt mesta og samfelldasta skógræktarsvæði landsins sem og gróskumikla starfsemi og iðnað sem á því byggir.
Meira |
| 19.6.2006 10:01 Aðalfundur Aðalfundur Landssamtaka skógareigendaSuðurlandsskógar minna skógarbændur á Suðurlandi á aðalfund Landsamtaka skógareigenda sem haldinn verður á Hallormsstað dagana 23.-24 júní 2006.
Meira |
|
24.5.2006 13:08 Skoðunarferð-Aðalfundur Aðalfundur Félags skógarbænda á SuðurlandiSkoðunarferð um Rangárvallasýslu  Suðurlandsskógar buðu Félagi Skógarbænda á Suðurlandi upp á skoðunarferð um Rangárvallasýslu í tengslum við aðalfund félagsins sem haldinn var á Kaffi Langbrók í Fljótshlíð laugardaginn 13 maí síðastliðinn.
Meira |
| 23.5.2006 13:35 Skógardagurinn mikli Skógardagur í HallormsstaðSkógardagurinn mikli verður haldinn á flötinni í Mörkinni á Hallormsstað Laugardaginn 24. júní næstkomandi. Dagskráin hefst kl 11.00 með því að keppt verður í 14 km skógarhlaupi á skógarstígum og 4 km. skemmtiskokki sem er fyrir alla fjölskylduna. Vegleg verðlaun í boði.
Meira |
|
22.5.2006 14:32 Hallormsstað 23-24. júní 2006 Aðalfundur Landssamtaka skógareigendaBoðsbréf Aðalfundur Landssamtaka skógaeigenda verður haldinn í íþróttahúsinu á Hallormsstað 23.-24. júní 2006.
Dagskrá fundarins hefst föstudaginn 23. júní kl, 10.00 og er eftirfarandi.
Meira |
| 15.5.2006 11:22 Aðalfundur Félags skógarbænda á Suðurlandi og skoðunarferð Skoðunarferð Félags Skógarbænda um RangárvallasýsluAðalfundur  Aðalfundur Félag Skógarbænda á Suðurlandi var haldinn laugardaginn 13. maí á Kaffi Langbrók í Fljótshlíð og var boðið upp á skoðunarferð um Rangárvallasýslu í tenglsum við fundinn. Meira |
|
25.4.2006 12:49 Félag skógareigenda Aðalfundur Landssamtaka skógareigendaAðalfundur frá Félagi skógarbænda á Héraði Aðalfundur Landssamtaka skógareigenda verður haldinn austur á Hallormsstaðdagana 23. og 24. júní. Stefnt er að því að byrja nefndarfundi kl. 10.00 á föstudagsmorguninn 23. og reyna að klára bæði nefndarfundi og aðalfundinn þann dag, en það skýrist ekki fyrr en eftir fulltrúaráðsfundinn í vor. Gæti farið svo að aðalfundurinn yrði fyrir hádegi á laugardaginn
Meira |
| 23.3.2006 12:50 Grisjun ýmissa smáreita á Suðurlandi. Grisjun Suðurlandsskógar og Skógræktarfélag Árnesinga hafa hafið samstarf um grisjun ýmissa skógarreita á Suðurlandi. Verður lögð áhersla á að grisja reiti í Árnes og Rangárvallasýslum á næstunni. Meira |
|
25.5.2004 12:47 Þátttakendur í Grænni skógum á Suðurlandi! Ég minni á útskriftina í Hveragerðiskirkju laugardaginn 29. maí kl. 14:00. Gott að vera komin tímanlega. Hugmyndin er að skreppa í heimsókn til þátttakenda í Grænni skógum á Norðurlandi í útskriftarferð eins og þið vitið. Farið verður helgina 11. - 13. júní ef næg þáttaka fæst. Við þurfum allavega að vera 20 svo hægt verði að fara. Meira |
| 14.5.2004 12:48 Takið frá helgina 13.-15. ágúst! Félag skógarbænda á Norðurlandi verður gestgjafi á aðalfundi landssamtaka skógareigenda sem haldinn verður í Húnavallaskóla dagana 13.-15. ágúst. Meira |
|
6.5.2004 12:46 Skóg- og trjárækt fyrir sumarbústaðaeigendur Laugardaginn 15. maí frá kl. 10.00 til 16:00 verður haldið námskeið um "Skóg- og trjárækt" fyrir sumarbústaðaeigendur í Garðyrkjuskólanum á Reykjum. Meira |
| 27.4.2004 12:45 Garðyrkjuverðlaunin 2004 Á sumardaginn fyrsta voru Garðyrkuverðlaunin 2004 afhent í fyrsta skipti í sögu Garðyrkjuskólans en leitað var eftir tilnefningum frá Græna geiranum. Meira |
|
21.4.2004 12:39 Norðlendingar og Sunnlendingar á námskeiði í jólatrjáarækt Þátttakendur í Grænni skógum á Norðurlandi og Suðurlandi sóttu sameiginlegt námskeið í jólatrjáarækt í Garðyrkjuskólanum nýverið. Um fjörutíu manns voru á námskeiðinu sem var bæði bóklegt og verklegt. Leiðbeinendur voru Brynjar Skúlason frá Norðurlandsskógum og Böðvar Guðmundsson frá Suðurlandsskógum. Meira |
| 18.4.2004 12:33 Opið hús á Reykjum og í Hveragerði á sumardaginn fyrsta Sterk hefð hefur skapast fyrir því að hafa opið hús í Garðyrkjuskólanum á Reykjum á sumardaginn fyrsta. Í ár eru það starfsmenn skólans sem standa fyrir þessum degi. Almenningi er boðið að heimsækja skólann kl. 10:00 - 18:00 og fjölbreytt dagskrá verður í boði. Meira |
|
3.4.2004 16:35 Gróður er góður - afmælisráðstefna 18. og 19. mars 2004 Tveggja daga afmælisráðstefnu verður haldin í sal Ferðafélags Íslands, Mörkinni 6 í Reykjavík eftir hádegi fimmtudaginn 18.mars og föstudaginn 19. mars. Um er að ræða samstarfsverkefni Garðyrkjuskólans (65 ára á sumardaginn fyrsta, 22. apríl nk.), Félags garðyrkjumanna (60 ára á sl. ári) og Félags skrúðgarðyrkjumeistara (30 ára á sl. ári). Meira |
| 29.3.2004 10:55 Skógarbændur fá hvatningarverðlaun B.S.E.  Búnaðarsamband Eyjafjarðar hélt aðalfund sinn að Laugarborg í Eyjafjarðarsveit 23. mars sl. Þar veitti Búnaðarsambandið m.a. árleg hvatningarverðlaun, sem veitt eru fyrir sérstakt framtak í landbúnaði og/eða úrvinnslu landbúnaðarafurða.
Meira |
|
2.3.2004 12:35 Skógur grisjaður í blíðunni  Starfsfólk Suðurlandsskóga fór út í blíðuna á dögunum og tók að sér að grisja skógarreitinn í Áshildarmýri sem er í eigu Árnesingafélagsins. Grisjunin gekk mjög vel og voru allir mjög ánægðir með framtakið. Meira |
| 3.2.2004 13:17 Námskeið endurtekið Vegna mikillar aðsóknar að námskeiðinu í grisjun og meðferð keðjusaga hefur verið ákveðið að endurtaka námskeiðið. Námskeiðið verður haldið dagana 25. og 26. mars í skólanum. Dagskráin verður eins og síðast og sést hérna fyrir neðan. Meira |
|
|
 |
Suðurlandsskógar Austurvegi 1. 2. hæð 800 Selfoss Sími: 480 1824 Fax: 480 1818 www.sudskogur.is |
|
 |
|
|