Tré geta orðið mjög há.
Hæsta tré í heimi er að finna í Kaliforníu. Það er 112 metra hátt og er af tegundinni sekoja (sequoia sempervirens). Ef tréð yrði fell næði það yfir fólboltavöll.
Ef tekið er tillit til ummáls og viðarmagns í tré þá er stærsta tré á jörðinni rauðviður eða svokallað mammúttré, sem einnig vex í Kaliforníu. Það kallast General Sherman og er 31 m í ummál og 83 m hátt.
Samkvæmt mælingum skógfræðinema Landbúnaðarháskóla Íslands haustið 2011 eru hæstu tré Íslands á Kirkjubæjarklaustri, sem er sitkagreni 24,77 m á hæð og alaskaösp á Hallormsstað, en það mældist 24,50 m á hæð.
Björn B. Jónsson.
Unnið að hluta til upp úr grein í Skogsbruket 11.2011.

