Árið 1996 kom Guðmundur Guðmundsson héraðslæknir Árnesinga heim frá framhaldnámi í Skotlandi. Meðferðis hafði hann fræ af silfurreyni sem honum hafði áskotnast. Þessu fræi kom Guðmundur til í garðinum í Laugardælum þar sem hann bjó. Sömuleiðis sáði hann hluta fræsins í Neðri-Laugardælaeyju í Ölfusá, þar sem er enn að finna fallegan og keikan silfurreyni sem er nú orðið 116 ára gamall.
Geta má þess að silfurreynir í Alþingisgarðinum er kominn af þessum trjám.

