103 fundargerð Sls

103. stjórnarfundur Suðurlandsskóga haldinn á Selfossi 17. október 2011 kl. 10:00. Fundinn sátu Sigríður Jónína Sigurfinnsdóttir stjórnarformaður, Björn B. Jónsson og Hreinn Óskarsson, ritari. María E. Ingvadóttir var í símasambandi á fundinum.

 

  1. Fundur settur og fundargerð síðasta fundar var lesin.

 

  1. Fjárlög 2012. Framlag til Suðurlandsskóga á Fjárlögum lækkar úr 93,1 m.kr. árið 2011 í um 92,6 m.kr. árið 2012. Fjárframlög ríkisins til annarra landshlutaverkefni hækka lítillega milli ára.

 

  1. Skert starfshlutfall starfsmanna.  Samið hefur verið við Hörpu Dís Harðardóttur um að hún verði  í 50% starfshlutfalli. Er Harpa tilbúin að dreifa vinnunni þannig að hún vinni lítið yfir vetrarmánuði og meira yfir sumarmánuðina. Samskonar samkomulag hefur verið gert við Hrönn Guðmundsdóttir um 50% starfshlutfall. Ekki hafa verið gerðar frekari breytingar um skerðingu á starfshlutfalli starfsfólks. Alls verða 3,9 ársverk hjá Suðurlandsskógum árið 2012.

 

  1. Undirbúningur nýrra skógræktarlaga. Góður gangur er í undirbúningi skógræktarlaga og fundar nefndin vikulega. Fyrstu drög verða væntanlega send út til umsagnar fljótlega.

 

  1. Umsókn jarða í skógrækt. Stóra Mörk 1 og Stóra Mörk 3 sækja um að hefja beitarskógrækt í óskiptu landi Stóru Merkur í Jökultungum í Merkurnesi. Er landið tæpir 1000 ha nú þegar friðað fyrir beit og verður beit á landinu ekki heimil fyrr en 10 árum eftir síðustu gróðursetningu. Hugmyndir landeigenda er að nota aðallega birki með lítilli íblöndun með öðrum tegundum. Suðurlandsskógar hafa ekki áður gert samninga um beitarskógrækt, en fordæmi er til um slíka samninga hjá Skjólskógum. Stjórn Suðurlandsskóga samþykkir að vinna áfram að verkefninu.

 

  1. Plöntuframleiðsla fyrir árið 2013. Samningar um ræktun plantna fyrir árið 2013 eru í gildi við Ábakka (150 þús), Barra (35 þús), Kvista (220 þús) og Öl á Sólheimum (40 þús). Auk þess eru ræktaðar 23 þús. plöntur í Dilksnesi í Hornafirði. Alls er samningar vegna ræktunar á 468 þúsund plöntum árið 2013. Þrjár stöðvar Laxárhlíð og Hvammur á Flúðum og Furubrún í Reykholti sem afhent hafa plöntur árin 2011 og afhenda árið 2012 hætta að framleiða plöntur fyrir Suðurlandsskóga.

 

  1. Aðalfundur Landsamband skógareigenda (LSE). Fór fundurinn vel fram og tóku Austfirðingar vel á móti gestum. Sögðu Björn og María stuttlega frá störfum fundarins. Einnig var haldin ráðstefna í tengslum við fundinn þar sem flutt voru erindi um skógrækt, einnig var haldinn fyrsti fundur jólatrjáaræktenda úr hópi skógarbænda. Undirbúningsfundur að stofnun sölusamtaka skógareigenda var og haldinn til hliðar við aðalfundinn.

 

  1. Laun stjórnar Sls. Breyting kom frá Landbúnaðarráðuneytin varðandi þóknun vegna fundarsetu á stjórnarfundum SLS. Almennir stjórnarmenn fá 15000 kr fyrir fund og formaður stjórnar  25000 kr.

 

  1. Samstarfsverkefni SLS með:
  • Listaháskólinn: Nemendur vinna að því að finna aðrar nytjar úr skógum en timburafurðir.  Þrjár jarðir voru valdar fyrir verkefnið Þrastaskógur, Kaldbakur á Rangárvöllum og Snæfoksstaðir í Grímsnesi. Stjórn SLS lýsir yfir ánægju sinni með þetta góða verkefni sem hefur opnað á margar nýjar hugmyndir og verkefni hjá listanemendum.
  • Háskóli Íslands: Hraðfjölgun á fjallaþin. Er þetta samstarfsverkefni HÍ, Rannsóknastöðvarinnar á Mógilsár, Suðurlandsskóga og Bændasamtaka Íslands. Kesera A. Jónsson stýrir verkefninu í HÍ. Hluti af verkefninu felst í að græða úrvalsplöntur á eldri rót og gróðursetja í fræreit á Suðurlandi t.d. á Tumastöðum.
  • Landbúnaðarháskóli Íslands: Verkefni Lilju Magnúsdóttur – hagfræðileg úttekt á uppgjöri við skógarbændur. T.d. að skoða hvaða þætti skógarbændur eru ekki að fá greidda frá ríkisvaldinu. Else Møller – MSc verkefni í jólatrjáarækt, unnið í samvinnu við Suðurlandsskóga á Prestbakkakoti.

 

  1. Önnur mál.
  • Ráðstefnan Heimsins græna gull verður haldin í Kaldalóni í Hörpu laugardaginn 22. okt.
  • Ráðstefnan Vistheimt á Norðurslóðum verður haldin 20.-22. okt á Hótel Selfossi.
  • Hreinn sagði frá sáningu á birki og stafafuru í trjáreit í Mosfelli. Er þessi aðferð að virka vel á tættu landi og vert að reyna þessa aðferð í stærri stíl hér á landi. Stjórn Suðurlandsskóga hyggst skoða þetta nánar á komandi vetri sem mögulega leið fyrir skógarbændur.