102 stjórnarfundur Sls

102. stjórnarfundur Suðurlandsskóga haldinn á Selfossi 4.ágúst 2011 kl. 13:00 – 20:00.

Fundinn sátu Sigríður Jónína Sigurfinnsdóttir stjórnarformaður, María E. Ingvadóttir, Björn B. Jónsson og Hreinn Óskarsson, ritari.

  1. Stjórnarformaður setti fund og óskaði Hreini til hamingju með doktorsgráðuna. Las stjórnarformaður yfir fundargerð síðasta fundar og var hún samþykkt.

 

  1. Laun stjórna LHV voru rædd og sagði Björn frá því að ákveðið hefði verið í Sjávarútvegs- og Landbúnaðarráðuneytinu að greiða óbreyttum stjórnarmönnum 20 þúsund kr á fund, og formanni stjórnar 30 þúsund kr á fund.

 

  1. Sigríður sagði frá kynningarfundi fyrir nýja formenn stjórna og framkvæmdastjóra LHV sem haldinn var með Þorsteini Tómassyni í Sjávarútvegs og Landbúnaðarráðuneytinu 30. maí 2011. Þar kynnti Jón Bjarnason drög að þingsályktunartillögu að fjárveitingum til LHV næstu 10 árin. Í ljós kom að aðrar tillögur voru kynntar en þær sem leggja á fram til Alþingis, en réttu tillögurnar boða enn meiri niðurskurð til LHV næstu árin.

 

  1. Björn lagði fram athugasemdir LSE og LHV í skógrækt sem sendar voru nefnd þeirri sem vinnur að gerð nýrra skógræktarlaga.

 

  1. Aðalskipulagsdrög í Rangárþingi eystra sem banna skógrækt á ákveðnum svæðum voru rædd. Hafa Björn og María fundað í tvígang um þau drög.

 

Farið var í ferð um Flóa og Ölfus og skógræktarframkvæmdir SLS skoðaðar. Á leiðinni var komið við í Ósavatni, hjá Hrönn á Læk og Sigurði í Gerðakoti. Með í för voru fyrri stjórnarmeðlimir þau Garðar Hannesson, Agnes Geirdal og Þorbergur Hjalti Jónsson. Var þeim þakkað fyrir vel unnin stjórnarstörf á síðustu árum í kvöldverði sem snæddur var í Hafinu Bláa við Ölfusárósa.