101. stjórnarfundur Suðurlandsskóga á Selfossi 23. maí 2011 kl. 9:15 – 12:00.
Fundinn sátu Sigríður Jónína Sigurfinnsdóttir stjórnarformaður, María E. Ingvadóttir, Björn B. Jónsson og Hreinn Óskarsson.
- Stjórnarformaður (setti fund) og las yfir fundargerð síðasta fundar. Ákveðið var að Hreinn yrði ritari á fundinum.
- Starfsmannamál Sls. Anna Björg færir bókhald og er í 25% starfi. Fjársýsla ríkisins gerir ársreikning í stað Ríkisendurskoðunar sem sá um það áður. Hrönn er í 80% starfi hluta úr ári, og frá apríl og fram í september er hún að vinna sem verktaki í skógrækt. Böðvar er í 49% starfi í áætlanagerð og fleiru, og er hann að hluta til kominn á eftirlaun. Harpa, Hallur og Valgerður eru í 80% starfi. Valgerður er í 20% starfshlutfalli í vinnu hjá Landgræðslu ríkisins. Björn er í 70% starfi hjá Suðurlandsskógum og í 30% starfi fyrir Landssamtök Skógareigenda. Greiða Landssamtökin um 4 milljónir til Suðurlandsskóga til að greiða fyrir vinnu Björns og starfstengdan kostnað. 3,8 ársverk hjá Suðurlandsskógum sem dreifast á 7 starfsmenn.
- Starfsreglur stjórna LHV. Ákveðið var að ræða starfsreglur betur á næsta fundi. Helstu breytingar á starfsreglunum er að fulltrúi Skógræktar ríkisins og skógarbænda fá ekki þóknun fyrir stjórnarsetu frá Suðurlandsskógum. Ennfremur að stjórn er falið að samþykkja rekstaráætlun.
- Ársskýrsla 2010. Framkvæmdastjóri lagði fram ársskýrslu Suðurlandsskóga 2010. Skýrslan var rædd og skoðuð og voru fundarmenn ánægðir með skýrsluna.
- Hækkun á töxtum Sls. Framkvæmdastjóri lagði til hækkun á gróðursetningartöxtum og öðrum töxtum SLS á árinu 2011. Vísitala launa er höfð til hliðsjónar, en hún hefur hækkað um 4,4 stig frá apríl 2010 til mars 2011. Rætt hefur verið meðal landshlutaverkefna í skógrækt að taxtar yrðu framvegis miðaðir við vísitölu launa. Stjórn samþykkti hækkunina.
- Heimasíða SLS var eyðilögð af hökkurum og sýkt með tölvuvírusum með tilheyrandi skemmdum á tölvum SLS og annarra. Því varð að loka heimasíðunni. Sagt var upp samningum við tölvufyrirtæki í Reykjavík sem sá um heimasíðuna og nýtt fyrirtæki á Selfossi fengið til að koma vefnum í lag.
- Rekstraráætlun 2011 var rædd. Framkvæmdastjóri las bréf með skýringum með rekstraráætlun til Sjávarútvegs- og Landbúnaðarráðuneytis. Ýmsir kostnaðarliðir voru ræddir m.a. aksturskostnaður, millifærslur milli ára og laun. Áætlunin var þegar samþykkt.
- Hraðfjölgun með vefjaræktun á fjallaþin. Teknar verða greinar af úrvalsplöntum úr fjallaþinstilraun í Haukadal og mun Háskóli Íslands verða með starfsmann í verkefninu. Verður þetta gert í samstarfi við Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá. Búist er við að fyrstu plönturnar verði til í haust og að þær verði nýttar til jólatrjáaræktunar.
- Styrkur úr sjóði Norsku Þjóðargjafarinnar frá 1961. Sótt var um styrk til að senda tvo starfsmenn til Noregs til að kynna sér ræktun jólatrjáa. 350 þúsund krónur fengust úr sjóðnum. Framkvæmdastjóra falið að þakka sjóðnum fyrir styrkinn.
- Ný nefnd er tekin til starfa til að endurskoða skógræktarlög. Stjórn falið að koma með hugmyndir að endurskoðun laganna á næsta stjórnarfund.
- 19 manna hópur á Suðurlandi stofnaði hóp um akurræktun jólatrjáa. Suðurlandsskógar koma að verkefninu með ráðgjöf, skjólbeltastuðningi og rannsóknum. Tilraunin með vefjaræktun fjallaþins tengist þessu verkefni.
- Aðalfundur Félags skógareigenda á Suðurlandi var haldinn 14-15. maí 2011. María sagði frá aðalfundinum þar sem heimsóttir voru skógar á Heylæk í Fljótshlíð, í Neðri Dal í Mýrdal, Deildárgili og Fellsmörk. Endað var á Þverlæk í Holtum. Nokkur erindi voru flutt. Ólafur Eggertsson sagði frá Fornskógum Íslands, Valgerður Erlingsdóttir flutti fyrirlestur um mismunandi viðargæði trjátegunda og Björn Jónsson sagði frá SLS, LSE og félagskerfi skógræktar. Rúmlega 50 manns voru á fundinum.
- Framkvæmdastjóri sagði frá endurmenntun fagfólks í samstarfi við Kaupmanna-hafnarháskóla, en þau námskeið sem sótt hafa verið hafa tekist afar vel. Margt gott hefur komið út úr samstarfinu bæði tæki og þekking. Stjórn fagnar þessu starfi og hvetur til áframhalds enda er eitt af þeim verkefnum sem framkvæmdastjóra er falið í starfslýsingu frá 1997.
- Tvær nýjar jarðir voru kynntar til sögunnar. Önnur þeirra var hluti jarðarinnar Hóla í Hornafirði og hin Ytri-Sólheimar 3, Mýrdal. Jarðirnar voru samþykktar.
- Önnur mál.
Rædd var skoðunarferð stjórnar um starfssvæði SLS. Var framkvæmdastjóra falið að skipuleggja ferð.
María nefndi hvort hægt væri að einfalda uppgjörsmál skógarbænda. Gott væri ef hún kæmi ábendingum um einföldun til starfsfólks Suðurlandsskóga.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur boðað framkvæmdastjóra og stjórnarformann á fund í ráðuneytinu fimmtudaginn 26.maí.
Framkvæmdastjóri fagnaði nýrri stjórn og óskaði henni velfarnaðar, og stjórnar menn fögnuðu einnig samstarfi við hann.
