100 stjórnarfundur Sls

100. stjórnarfundur Suðurlandsskóga haldinn á Hótel Örk

16. mars 2011 kl 15.30.

Mættir voru Garðar Hannesson, Agnes Geirdal, Þorbergur Hjalti Jónsson, Björn B. Jónsson og Hrönn Guðmundsdóttir sem ritaði fundargerð.

  1. Formaður setti fundinn og lagði fundargerð síðasta fundar til samþykktar.

 

  1. Frá því síðast:                                                                                               

Danmerkurferð: Sls. stóð fyrir þriðju námsferðinni til Danmerkur. Tólf einstaklingar fengu styrk frá Leonardo úr starfsmenntaáætlun ESB, en Björn fór frítt á vegum Danska Landbúnaðarháskólans. Tilgangur námskeiðsins var að kynnast nýjustu tækni varðandi úrvinnslu skóga.    

  • Ár skóga: Stofnaður hefur verið starfshópur varðandi ár skóga. Í starfshópinn voru skipuð Björn B. Jónsson, Magnús Gunnarsson, Jón Loftssyni og Hulda Guðmundsdóttir sem leiðir hópinn. Meðal verkefna starfshópsins er að setja upp heimasíðu Ár skóga.   
  • Hrönn Guðmundsdóttir lagði fram til kynningar samantekt á upplýsingum um heildar gróðursetningu og hektarastærð samningssvæða eftir sveitarfélögum bæði í skógrækt og skjólbeltarækt. Munu þessar upplýsingar birtast í ársskýrslu  Sls.
  • LSE verkefni aukast. Björn upplýsti stjórnina um stöðu varðandi samning Sls og LSE. Verkefni samtakanna aukast stöðugt.

 

  1. Hraðfjölgun á þin.

 Lagt fram til kynningar fyrirhugað samstarf á milli HÍ, SLS og Skógræktar ríkisins

varðandi hraðfjölgun á Þin. Hugmyndin er að fá nemenda til að vinna verkefnið.

Mógilsá leggur til gróðurhús fyrir verkefnið, HÍ sótti styrk fyrir nemendaverkefni og

 lagt er til að Suðurlandsskógar greiði eins mánaðar laun til nemandans.

  1. Ný skógræktarlög: Umræða fór fram um endurskoðun á skógræktarlögum.

 

  1. Samstarfsverkefni Sls, LSE og LBHÍ í jólatrjáarækt á akri lagt fram til kynningar: Fyrsti hópur í jólatrjáarækt á akri á Suðurlandi er að fara af stað. 19 aðilar eru skráðir í hópinn og hópstjóri verður Hrönn Guðmundsdóttir.  Hlutverk Sls. er ráðgjafahlutverk. Á næstunni fer hópstjóri ásamt starfsmönnum Sls. í heimsókn til allra sem hafa skráð sig í hópinn og aðstoða við að velja svæði undir ræktunina. LBHÍ er að skipuleggja námseið í áætlunargerð fyrir jólatrjáræktun á akri.

 

  1. Aðalfundur FsS  verður haldinn í Freysnesi 14 maí.

 

  1. Ráðstefnur framundan: Nýafstaðið er fræðaþing landbúnaðarins og framundan er fagráðstefna í skógrækt sem haldin verður haldin í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp, í loka undirbúningi er ráðstefna sem haldin verður í Reykjavík varðandi úrvinnslu skóga. Haustið 2011 verður Íslandsmiðuð ráðstefna varðandi skógrækta á heimsvísu.

 

  1. Árið framundan: Gengið hefur verið frá plöntukaupum við framleiðendur fyrir 2011. Magnið hljóðar upp á tæplega 600 þúsund plöntur. Áburðarkaup fyrir árið 2011 verður með svipuðu sniði og árið 2010, en þó hefur verið ákveðið að kaupa 3 tonn af kjötmjöli (köggluðu) og sprett 25-5+Avail+Se. til prufu. Hugmyndi er að setja út áburðartilraun  á einhverjum jörðum nú í sumar. Dreifingarstöðvar verður á sömu stöðum og áður.

 

  1. Stjórnarskipti. Óskað hefur verið eftir því að tilnefnt verður í nýja stjórn Sls. Fyrir næstu mánaðarmót.

Björn þakkaði fráfarandi stjórn vel unnin störf.

  1. Önnur mál: Garðar Hannesson formaður þakkað meðstjórnendur sínum og framkvæmdastjóra fyrir gott og farsælt samstarf.

 

  1. Fundi slitið 17.30

HG