73 stjórnarfundur sls

73. fundur í stjórn Suðurlandsskóga fimmtudaginn 1. nóvember 2007 klukkan 9.00.Mætt voru Garðar Hannesson formaður, Agnes Geirdal, Hreinn Óskarsson og Björn B. Jónsson sem ritaði fundargerð.

  1. Fundur settur og fundargerð síðasta fundar samþykkt.
  1. Niðurstaða útboðs á plöntum

Framkvæmdastjóri kynnti niðurstöðu útboðs á ræktun og frystingu á trjáplöntum. Samþykkt að ganga að tilboði Barra í 50 þúsund asparplöntur og Garðyrkjustöðvarinnar Kvista í 20 þúsund blágreni, 10 þúsund hvítgreni og 120 þúsund stafafuru.

  1. Skjólbeltanámskeið í Danmörku

Sautján Íslendingar tóku þátt í skjólbeltanámskeiði í Danmörku dagana 21. október til 26. október s.l. Námskeiðið tókst vel í alla staði og var allt skipulag skógtækniskólans í Nödebo til mikillar fyrirmyndar.

Stjórn Sls fagnar því hversu vel námskeiðið gekk og þakkar skipuleggjendum fyrir gott framtak.

 4. Jólatrjáanámskeið á næsta ári – umsókn um styrk

Samþykkt að fela framkvæmdastjóra að undirbúa EU-styrkumsókn fyrir jólatrjáanámskeið haustið 2008 og eins að óska eftir tillögum frá Nödebo að dagsetningum sem koma til greina fyrir námskeiðið.

5. Samningur við LBHÍ.

Framkvæmdastjóri kynnti drög að samningi við LBHÍ um val á nýjum tegundum trjáa og runna í skjólbelti. Hugmyndin er að nýta kunnáttu Jóns Kr. Arnarssonar á runnum og trjátegundum til gera skjólbelti SLS fjölbreyttari. Samþykkt að ganga til samninga við LBHÍ á grunni draganna, en skoða betur kostnaðarþátttöku Sls í verkefninu.

  1. Landbúnaðarnefnd Alþingis 7. nóvember n.k.

Landbúnaðarnefnd Alþingis hefur verið boðið í kynnisferð á svæði Suðurlandsskóga 7. nóvember n.k. Formaður og framkvæmdastjóri Sls munu taka á móti nefndinni ásamt fulltrúum hinna landshlutaverkefnanna.

7. Bandormur – álitsgerð

Framkvæmdastjóra falið að gera drög að umsögn Suðurlandsskóga um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna tilfærslu verkefna innan Stjórnarráðs Íslands (þingsj. 131-130. mál). Gera skal athugasemd við 5. þátt frumvarpsins sem segir til um breytingar vegna flutnings skógræktar til umhverfisráðuneytis.

Umsögnin verður kynnt stjórnarmönnum Sls áður en hún verður send nefndasviði Alþingis.

Stjórn Suðurlandsskóga vill árétta að landshlutaverkefnin í skógrækt hafa frá upphafi verið verkefni bænda og telja því að verkefnunum verði áfram best borgið á hendi Landbúnaðarráðuneytisins, enda er um að ræða atvinnu-, byggða- og skógræktarverkefni sem er unnið af bændum um allt land. Fulltrúi Skógræktarinnar í stjórninni tók fram að hann vildi áfram sjá Landshlutarverkefnin og Skógrækt ríkisins saman í einu ráðuneyti, en tók ekki afstöðu til hvort það væri Umhverfisráðuneytið eða Landbúnaðarráðuneytið.

  1. Trygging skóga

Nefnd um tryggingar á skógum hefur verið skipuð. Fulltrúi landshlutaverkefnanna er framkvæmdastjóri Sls, Hallgrímur Indriðason fulltrúi S.r., Helgi Gíslason fulltrúi skógræktarfélaganna og Sveinn Segatta fulltrúi tryggingageirans.

  1. Önnur mál

Næsti fundur 6.desember klukkan 9.00 á Selfossi