72 stjórnarfundur Sls

72. fundur í stjórn Suðurlandsskóga haldinn á Selfossi 27. september 2007 klukkan 9.00 til 11.00

Öll stjórn Sls mætt auk framkvæmdastjóra sem ritaði fundargerð.

Gestur fundarins er Björgvin Eggertsson LBHÍ.

 

  1. Formaður setti fund klukkan 9.00. Fundargerðir frá fundi nr. 70. og 71.  samþykktar.

 

  1. Ársreikningur 2006.                                                                                         

Lagður fram ársreikningur fyrir árið 2006. Ríkisframlag var 120,2 milljónir.                                                          

Tekjuafgangur ársins er 9.488.302.-, eigið fé 5.939.315.- viðskiptaskuldir 1.620.802.- .    

      Ársreikninginn samþykktur og undirritaður.

 

  1. Útboð á plöntum fyrir árið 2008.

Tilboð  í frystar trjáplöntur fyrir Sls verða opnuð 2. október hjá Ríkiskaupum.

  1. Aðalfundur LSE.

Fundurinn var haldinn að Reykhólum í lok ágúst. Samþykkt var m.a. tillaga um að   

láta  fara fram skoðun á verðmæti ísl. skóga. Framkvæmdastjóri Sls verður

formaður nefndar sem mun leiða það verkefni.

  1. Grænni skógar II.

Björgvin Eggertsson mætti á fundinn og ræddi um Grænni skóga II.

Samþykkt að fara af stað með Grænni skóga II á næsta ári sem verður sett saman af átta námskeiðum á tveggja ára tímabili. Þar við bætist vikunámskeið erlendis.

Samþykkt að skipaður verði undirbúningshópur til að setja saman námsskrá o.fl. sem snertir námskeiðið. Í honum verða Agnes Geirdal, Böðvar Guðmundsson og Björgvin Eggertsson. Framkvæmdastjóri Sls verður nefndinni til aðstoðar eftir þörfum.

  1. Námskeið í Danmörku í lok október.

Fjórtán aðilar hafa skráð sig á skjólbeltanámskeiðið í Nödebo. Námskeiðið mun

standa frá 21. til 26. október n.k.

  1. Brunavarnir í skógi.                                                                                    

Samþykkt að Sls verði þátttakandi í rannsóknum á gróðureldum sem Þröstur Þorsteinsson mun standa að. Þátttakan er háð styrk frá Rannís.        

Brunamálastofnun mun á næstunni gefa út bók um brunavarnir í skógi.

  1. Önnur mál.

Næsti fundur verður 18. október n.k.