62 stjórnarfundur

62. stjórnarfundur Suðurlandsskóga 5. október  2006 á Selfossi klukkan 13.00.

Mættir voru Garðar Hannesson formaður, Agnes Geirdal, Hreinn Óskarsson, Björn B. Jónsson. Fundargerð ritaði Hrönn Guðmundsdóttir.

1. Fundur settur. Fundargerð 61. fundar samþykkt.

 

2. Ný stjórn tekur til starfa. Hana skipa Garðar Hannesson formaður, Agnes Geirdal frá Félagi skógarbanda á Suðurlandi og Hreinn Óskarsson frá Skógrækt ríkisins. Formaður bauð nýja stjórnarmenn velkomna til starfa og þakkaði fráfarandi stjórn vel unnin störf.

Samþykkt var að kveðja fráfarandi og fyrrverandi stjórnir Suðurlandsskóga  með síðdegisferð í skógarskoðun.

3. Framkvæmdastjóri fór yfir helstu verkefni sem hafa verið í vinnslu eins og t.d úttekt í áætlunargerð og skjólbeltaræktun auk úttektar Björgvins Eggertssonar. Einnig kynnti Björn þau verkefni sem eru framundan.

4. Samkvæmt lið 2. í síðustu fundargerð kemur fram að þróuð  verði áfram hugmynd og reglur varðandi þróunarsjóð sem notað yrði til að styrkja ýmis þróunarverkefni.

Niðurstaða þessarar vinnu er að Suðurlandsskógar hafa ekki heimild til að stofna slíkan sjóð.

5. Útboð plantna. Lögð var fram áætlun  varðandi útboð plantna sem eiga að fara í frystigeymslu. Samþykkt var að fara í útboð á trjáplöntum til frystingar:

SG 1/0 fp. 40. = 200.000stk.,

SG 2/0. fp. 35 = 90.000stk.,

SF. 1/0. fp. 40 = 80.000 stk.

Samtals 370.000 plöntur.

6. Fjárlög 2007. Framkvæmdarstjóri lagði fram til kynningar fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar  2007 þar sem fram að Sls. fái129,7 milljónir.

7. Kaup á gróðursetningarhaus; Samþykkt var á síðasta stjórnarfundi Sls. að Suðurlandsskógar myndu kaupa gróðursetningarhaus og leigja hann til verktaka, sem hefði forkaupsrétt á honum, ef viðunandi samningur næðist. Framkvæmdarstjóri lagði fram samning við Græna Drekann varðandi leigu og forkaupsrétt á hausnum.

Stjórn Suðurlandsskóga samþykkti samninginn við Græna drekann.

Fulltrúar skógabænda og Skógræktar ríkisins fagna frumkvæði  Suðurlandsskóga í vélvæðingu skógræktar sem gerir verktakanum kleyft að reka og kaupa gróðursetningarvél hér á landi. Án gróðursetningarhaussins hefði ekki verið rekstrargrundvöllur fyrir slíka vél hér á landi.

8. Drög að nýjum samningum við bændur. Framkvæmdarstjóri lagði fram til kynningar drög af nýjum samningi við skógarbændur. Á grundvelli nýrra laga þarf að breyta samningum og hugsanlega að endurskoða alla eldri samninga. 

9. Önnur mál. Tillaga lögð fram um að stefnt verði á að halda stjórnarfundi fyrsta fimmtudag hvers mánaðar. Ítreka með tölvupósti og dagskrá.

Fundi slitið  klukkan 15.

HG