60 stjórnarfundur Sls

Suðurlandsskógar, 60. stjórnarfundur að Gljúfri í Ölfusi 16/6 2006.

Mættir voru: Garðar Hannesson, Jón Hólm, Jón Loftsson og Björn B. Jónsson.

Fundargerð ritaði Böðvar Guðmundsson.

Garðar bauð menn velkomna til sextugasta fundar stjórnar Suðurlandsskóga og þakkaði húsráðendum fyrir húspláss og aðstöðu.

  1. Fundargerð síðasta fundar borin upp og samþykkt.

 

  1. BBJ  lagði fram yfirlit yfir breytingartillögur vegna nýrra laga um landshlutabundin skógræktarverkefni og ræður þingmanna um málið. Vitnaði hann í  ræði Jóns Bjarnasonar þingmanns:  “ríka fólkið fær þetta til sín og vill þar með loka fyrir umferð  um jarðirnar”.   BBJ  ræddi óvissu vegna nýju  laganna og gömlu samninganna. Á að gera nýa samninga við alla?  12 grein nýu laganna tekur á þessu og kveður upp úr með það að nýu lögin taka einnig til gamalla samninga.  BBJ  vekur athygli á að viðauki við Suðurlandsskógalögin frá árinu 2000 er ekki felldur út.

 

Fundarsamþykkt:  Stjórn SLS óskar eftir viðræðum við ráðuneytið vegna nýrra laga um landshlutabundin skógræktarverkefni.

  1. Nýjar jarðir í SLS.

Neistastaðir í Flóa:  samþykktir inn

Stóra Hof í Gnúpverjahreppi:  samþykkt inn.

Kjaransstaðir í Biskupstungum:  frestað þar sem landið er of blautt til skógræktar.

Borgarholt í  Biskupstungum: ákvarðanatöku frestað þar sem landið er óskoðað ennþá.

  1. Rannsóknaráætlun í samstarfi við Sr og LBHÍ er varðar gæðastýringu í skógarplöntuframleiðslu.

Landbúnaðarháskólinn, S.r. og Suðurlandsskógar hafa hafið samstarf um úttekt á gæðum skógarplantna í ræktun og á frysti.

  1. Úttekt á gerð skógræktaráætlana:

Verkefni Júlíu Björnsson var kynnt fyrir stjórn SLS.

  1. Framhaldsnám Hörpu og Hrannar starfsmanna SLS.

Lagt fram bréf frá þeim stöllum með ósk um frekari stuðning við nám þeirra í skógfræðum, eins og verið hefur að undanförnu.    Samþykkt.

  1. Rannsóknaráætlun í gæðastýringu í skógrækt.

BBJ skýrði frá því að úttekt Björgvins Eggertssonar á gróðursetningum SLS hafi verið kynnt fyrir Mógilsármönnum.  Þeir vilja nýta sér þetta og gera frekari tölulega úttekt á  verkefninu. Kanna þarf sérstaklega kvæmi, klóna  og  þol þeirra við frostpollaáhrifum.  Næstu skref:  kanna hvort hægt er að fá nema til að vinna með gögnin í samvinnu við  Landbúnaðarháskóla Íslands og Tilraunastöðina á   Mógilsá.

  1. Garðar Hannesson var tilnefndur ásamt Einari Oddi Kristjánssyni og Birgi Haukssyni til að endurskoða stofnanasamninga  skógræktarverkefnanna. Lending náðist fyrir Vestur og Suðurlandsskóga, en Einar Oddur skrifaði ekki undir fyrir  Vesturlandsskóga.  Fyrir SLS var samið fyrir Valgerði og Björn og fyrir Björgvin með samþykki Hekluskóga.

 

  1. BBJ  varpaði fram þeirri hugmynd að stofna þróunarsjóð SLS.  Etv má setja kr  2,00  í sjóðinn, fyrir hverja vélplantaða  plöntu.  Þetta yrði gert til að standa straum af kostnaði við kaup á nýjum og óþekktum vélum í skógrækt hér á landi.  Framkvæmdastjóra falið að setja hugmyndina á blað.

 

  1. Önnur mál.

a)      Frysting skógarplantna:  Jón Loftsson spyr hver sé staða málsins. Svar: Hallur fór með Sigurði Ásgeirssyni til Noregs í vor til að skoða frysta. Málið er í eðlilegu ferli.

b)      Úrvinnsla: Nú þegar hyllir undir mikið framboð af  grisjunartimbri er nauðsynlegt að huga að nýtingu þess. Æskilegt að mynda starfshóp með fulltrúum Skógræktarfélaganna, félagi Skógarbænda og Skógrækt ríkisins til að skoða þetta.

  1. Rósa  húsfreyja á Gljúfri bauð nú til hádegisverðar og  var stórsteik á borðum sem bragðaðist afar vel.  Eftir  hádegisverð var farið í ökuferð um uppland Gljúfurs og  gróðursetningar skoðaðar í  húða rigningu. Sýndist þar margt hafa vel til tekist.