59. stjórnarfundur Suðurlandsskóga haldinn á Hótel Sögu 21. mars 2006.
kl. 11.30.
Mættir voru Garðar Hannesson formaður, Jón Loftsson, Jón Hólm Stefánsson og Björn B. Jónsson sem ritaði fundargerð.
- Formaður lagði fram fundargerð síðasta fundar til samþykktar.
- Frumvarp til laga um landshlutaverkefni í skógrækt.
Rætt um frumvarpið og umsögn um það. Framkvæmdastjóra falið að senda nefndasviði Alþingis jákvæða umsögn um fumvarpið, þó þannig að lögð er áhersla á að LSE fái 2% af opinberu framkvæmdafé verkefnanna til eflingar á starfi samtakanna eins og stjórn LSE hefur farið fram á, enda telur stjórn Suðurlandsskóga mikilvægt fyrir árangur verkefnanna, að starf LSE verði elft.
- Önnur mál.
Jón Loftsson lagði fram tillögu þess efnis að Rannsóknastöðinni á Mógilsá yrði kynntar niðurstöður úttektar Björgvins Eggertssonar á árangri í skógrækt. Í framhaldi af því verður rætt með hvaða hætti Mógilsá geti komið að lausn á þeim vandamálum sem fram koma í úttektinni.
Samþykkt að koma fundi á með Mógilsárfólki þar sem þessi mál verða rædd, auk þess var samþykkt að óska eftir samstarfi við Mógilsá um gæðaeftirlit í skógarplönturæktun.
Fundi slitið klukkan 13.00
bbj
