65. fundur í stjórn Suðurlandsskóga föstudaginn 2. febrúar klukkan 9.00 til 11.30.
Mætt Garðar Hannesson formaður, Hreinn Óskarsson, Agnes Geirdal og Björn B. Jónsson sem ritaði fundargerð.
1. Fundargerð síðasta fundar.
Fundur settur og fundargerð samþykkt.
2. Rekstraráætlun 2007.
Framkvæmdastjóri lagði fram rekstraráætlun 2007. Farið yfir helstu breytingar frá árinu 2006. Gert er ráð fyrir að kostnaður vegna launa, þjónustu, húsnæðis, eignakaupa og ferða lækki milli ára en bifreiðakostnaður hækkar. Rekstraráætlunin gerir ráð fyrir verulegri útgjaldaaukningu vegna gróðursetningar og plöntukaupa.
Áætlunin samþykkt.
3. Plöntuútboð
Farið yfir síðasta útboð og gerð grein fyrir niðurstöðu þess. Garðyrkjustöðvarnar Árbakki og Kvistar voru með lægsta verð. Gengið var fá samningum við þá aðila til þriggja ára, með framlengingarheimild til tveggja ára.
4. Plöntusamningar
Gengið hefur verið frá plöntusamningum við framleiðendur byggða á fyrri útboðum. Um er að ræða trjáplöntur til afhendingar árið 2008.
5. Yfirlit ársverka hjá Sls
Lagt fram yfirlit yfir árverk hjá Sls frá 1998. Árið 2005 voru ársverk 20 talsins, þar með talin afleidd störf.
6. Bréf sem borist hafa.
Bréf frá Rannsóknarstöð skógræktar Mógilsá v/ rannsóknarverkefnisins ,,Betra líf”. Verkefnið fjallar um rannsóknir til bættrar lifunar í nýgróðursetningum.
Stjórn Sls tekur undir þörf á rannsóknarverkefni sem þessu, en telur að skoða þurfi betur einstaka þætti framkvæmdarinnar og kostnað við það.
Samþykkt að stofnaður verði rannsóknarhópur landshlutaverkefnanna og Mógilsár, sem hafi yfirumsjón með verkefninu. Hallur Björgvinsson tilnefndur að hálfu Sls í hópinn.
7. Grænsíða – gagnagrunnur landshlutaverkefnanna.
Gagnagrunnurinn var tekinn í notkun 26. janúar sl. Gert er ráð fyrir að fyrstu bændur hjá Sls geti fengið aðgangsorð inn á sín heimasvæði gagnagrunnsins næsta vetur.
8. Taxtar ársins 2007.
Uppfærðir taxtar fyrir árið 2007 samþykktir. Ákveðið að gefa stjórn Félags skógarbænda kost á að yfirfara taxtana.
Hækkun frá árinu 2006 er 9,5%, sem er launavísitala ársins. Nýr taxti vegna ,,umsýslu” gróðursetningar kemur til framkvæmda á árinu og eins nýr taxti vegna ,,hvolfu” gróðursetningar þ.e.a.s. gróðursetning í umvenda torfu með áburðargjöf, allt í einni aðgerð.
9. Önnur mál
a) Rætt um veðurstöðvar og mikilvægi þeirra í skógrækt. Framkvæmdastjóra falið að
kanna búnað og kostnað.
b) Rætt um brunavarnir og brunatryggingar í skógrækt. Málið í vinnslu.
c) Framleiðnisjóður hefur dregið sig út úr styrkveitingum til
námskeiðahalds bænda, þ.á.m. Grænni skóga. Framkvæmdastjóra falið að skoða stöðu
mála og finna viðunandi lausn fyrir núverandi nemendur Grænni skóga á Suðurlandi.
bbj
