9 stjórnarfundur Sls

Níundi  stjórnarfundur Suðurlandsskóga  5.10.´98.

Haldinn í Rúgbrauðsgerðinni Borgartúni 6.

Mættir  Ísólfur Gylfi Pálmason (ÍGP), Jón Loftsson (JL), og Gunnar Sverrisson (GS), Björn B. Jónsson (BBJ). Fundur hófst kl. 14.00 og endaði kl 15.30. 

 

Formaður setti fundinn.

  1. 1.     Fundargerð síðasta fundar

Samþykkt.

  1. 2.     Bókhald Sls.

Samþ. að láta Skógrækt ríkisins annast bókhald Suðurlandsskóga til

ákveðins tíma.  Framkvæmdastjóra  Sls falið að ganga frá samningi við

fjármálastjóra S.r. vegna þessa. 

  1. 3.     Skipun í vinnuhóp v/ náttúruverndar.

Bréf frá landbúnaðarráðherra lá fyrir fundinum þar sem hann óskar eftir

tilnefningu í vinnuhóp vegna verndarþarfar í tengslum við  Suðurlandsskóga. 

Samþ. að tilnefna BBJ í vinnuhópinn. 

  1. 4.     Rafgirðingarnámskeið í Gunnarsholti.

BBJ sagði frá dagskynningu á rafgirðingum í samstarfi Landgræðslunnar og

Sls fyrir bændur. Heppnaðist í alla staði vel. 

  1. 5.     Greiðsla fyrir áætlanagerð.

S.r. mun fá aukið fjármagn frá ríkissjóði til áætlanagerðar.

ÍGP, JL og BBJ sátu fund með ráðherra í hádeginu þar sem þetta var

niðurstaða  fundarins að þeirra mati.

  1. 6.     Uppgjör við Ríkiskaup.

Rikiskaup hafa gefið eftir 33,3,% af heildarreikningi v/útboðs. Greiðsla

hefur farið fram.

  1. 7.     Ferð starfsmanns Sls til Finnlands og plöntuframleiðenda til Svíþjóðar.

Skógarbændur á Suðurlandi hafa samþykkt að styrkja ferð Hörpu Dísar

starfsmanns Sls til Finnlands til að kynna sér gæðamál í plöntuframleiðslu. Þakkir

skulu færðar til bænda. 

BBJ sagði frá umsókn um fjárstuðning til Framleiðnisjóðs vegna

hugsanlegrar kynnisferðar plöntuframleiðenda til Svíþjóðar.  Mun skýrast

fljótlega.

  1. 8.     Starfsmannafundur Sls.

BBJ sagði frá starfsmannafundi  með svæðisstjórum verkefnisins.

Þar var samþykkt að verkefni svæðisstjóra skal vera:

u    Umsjón  útplöntunar

u   Umhirða í dreifingarstöð

u   Sjá um plöntudreifingu

u   Eftirlit með útplöntun

u   Útvega fólk í útplantanir

u   Ráðgjöf um meðferð plantna

u   Bakkaskil

 

u    Úttektir á gróðursetningum

u Plöntuset

u Millibil plantna

u Jarðvinnsla

u Áburðargjöf

u Afföll skoðuð

u Eftirlit með friðun lands

u Ráðgjöf

uUmsjón  útplöntunar

uUmhirða í dreifingarstöð

uSjá um plöntudreifingu

uEftirlit með útplöntun

uÚtvega fólk í útplantanir

uRáðgjöf um meðferð plantna

uBakkaskil

uGróðursetningar næsta árs

uPlöntuáætlanir

uJarðvinnsluáætlanir

uÁburðaráætlanir 

uSkjólbeltarækt

uUndirskrift samninga við landeigendur

uRáðgjöf og verkstjórn

uGeymsla/umhirða/dreifing plantna,eftirlit

uÚtvegun á plasti ,plastlagningu 

  1. 5.     Logo fyrir Sls.

Samkeppni um merki Sls stendur yfir. Lokafrestur til innsendingar er 10.10.´98.

Bílfoss styrkir keppnina. 

  1. 6.     Ný skógræktarlög.

JL fór yfir ný drög að skógræktarlögum.  GS vill engu hafna fyrirfram varðandi ný

lög. Fundarmenn voru því sammála.

  1. 7.     Önnur mál.

            BBJ sagði frá áliti lögfræðings Landbúnaðarráðuneytis, þar sem kemur fram

      að möguleiki er hjá skógarbændum með þinglýstan samning að byggja sumarhús

      í samningsbundnu landi, án þess að það komi fram í samning.

BBJ